Verjandi annars mannanna, sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um skipulagningu hryðjuverk, segir hann meinleysisgrey sem ekki gæti gert flugu mein. Hann segist enga trú hafa á að mennirnir tveir verði ákærðir fyrir skipulagningu hryðjuverks. Þá bendir hann á að Héraðssaksóknari fari offari í málinu. Þetta kemur fram í fréttum Bylgjunnar og á Vísi.is í dag.
Þar kemur fram að Landsréttur hafi staðfest fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur en þeir voru handteknir fyrir fjórum vikum. Mennirnir séu grunaðir um vopnalagabrot, fyrir að hafa framleitt skotvopn með þrívíddarprentara, og fyrir að hafa rætt sín á milli í gegn um netskilaboð að fremja hryðjuverk og tilræði við þekkta Íslendinga.
„Eftir samtöl við minn umbjóðanda sýnist mér að það hafi verið farið fullgeyst af stað í þessu máli með blaðamannafundum og öðru slíku og efnisatriði málsins sýnist mér vera þannig að þarna er um að ræða vopnalagabrot,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður annars mannanna í viðtalinu.
Umbjóðandi hans hafi gengist við vopnalagabroti en mennirnir hafi ekki verið farnir að grípa til raunverulegra undirbúningsaðgerða. Aðeins sé til staðar spjall þeirra á milli. „Og misheppnað grín hjá þessum tveimur drengjum. En að um sé að ræða skipulag hryðjuverka á opinni spjallrás, það stenst engan vegin,“ segir Sveinn Andri í viðtali við Vísi.is.
„Minn umbjóðandi er meinleysisgrey og gerir ekki flugu mein og eins langt frá því að vera efni í hryðjuverkamann og hugsast getur. Hann hefur engan áhuga á stjórnmálum, heldur að Píratar séu sjóræningjar en ekki stjórnmálaflokkur og svo framvegis. – ,,Mín tilfinning er sú að þeir endi á að verða ákærðir fyrir vopnalagabrot og þeir muni játa þau.“ Segir í fréttinni.