• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 19. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rannsókn Lögreglunnar á alvarlegri árás gengur vel

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. nóvember 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri árás í miðborginni undir miðnætti sl. fimmtudagskvöld miðar vel, en hún hefur verið í algjörum forgangi frá því að málið kom upp.

Tugir lögreglumanna hafa unnið sleitulaust að rannsókn málsins, auk þess sem embættið hefur jafnframt notið góðrar aðstoðar annarra lögregluliða vegna þessa. Í fyrrnefndu máli voru þrír menn stungnir á skemmtistað í Bankastræti, eins og fram hefur komið, en að þeim réðst fjölmennur hópur manna.

Árásarmennirnir voru um þrjátíu talsins, þótt þeir hafi haft sig mismikið í frammi. Ekki síst í ljósi þessa fjölda er um mjög umfangsmikla rannsókn að ræða, en þrjátíu hafa verið handteknir í þágu hennar. Sextán hafa enn fremur verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, ýmist í eina viku eða tvær, en einum hefur verið sleppt. Núna eru því fimmtán í haldi lögreglu, en sá yngsti þeirra er sautján ára en sá elsti er á fertugsaldri. Fáheyrt er að svo margir sitji í gæsluvarðhaldi í einu og sama málinu.

Samhliða eru til rannsóknar tilvik um hótanir og skemmdarverk á íbúðarhúsnæði undanfarna daga, sem talin eru tengjast árásinni í miðborginni, en þau hafa skapað mikla hættu. Eftir að málið kom upp hefur lögreglan aukið viðbúnað sinn og svo verður áfram og munu þess t.d. sjást merki um komandi helgi vegna þeirra hótana sem settar hafa verið fram.

Umfjöllun fjölmiðla um málið hefur verið mikil, eins og við má búast þegar svo alvarlegt mál á sér stað. Lögreglan hefur lagt mikla áherslu á að vera til svara og miðla þannig upplýsingum til almennings í gegnum fjölmiðla eins mikið og tök eru á. Því tengdu má nefna að lögreglan skoðar hvernig myndefni af árásinni í miðborginni rataði í fjölmiðla og hvort starfsmaður hennar hafi átt þar hlut að máli. Slíkt er litið alvarlegum augum og er það til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara, sem var þegar gert viðvart vegna þessa.

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Uppbygging hjúkrunarheimila: Sátt milli ríkis og sveitarfélaga fest í lög

    Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Viðvörun vegna veðurs

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Andrew handtekinn

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • ,,Af hverju í ósköpunum ættum við að rukka þig fyrir að nota peningana þína?“

    447 deilingar
    Share 179 Tweet 112
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?