Ný brunavarnaáætlun og samningur um fjórar nýjar slökkvibifreiðar
Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. mun föstudaginn 4. maí bæði undirrita nýja brunavarnaáætlun og samning um kaup á fjórum nýjum slökkvibifreiðum. Af þessu tilefni bjóðum við fjölmiðlum að heimsækja okkur í bílasal slökkviliðsins í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð kl. 10:00 (stjórnin undirritar samninginn kl. 10:15).
Formaður stjórnar slökkviliðsins, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, mun ásamt Birni Karlssyni forstjóra Mannvirkjastofnunar og Jóni Viðari Matthíassyni slökkviliðsstjóra undirrita nýja brunavarnaáætlun sem sveitarfélögin hafa staðfest og er stefnumótandi til næstu ára varðandi þá þjónustu sem slökkviliðið veitir höfuðborgarbúum.
Í beinu framhaldi munu borgarstjóri og Benedikt Einar Gunnarsson, framkvæmdastjóri hjá Ólafi Gíslasyni & Co. hf. undirrita samning um kaup á fjórum nýjum slökkvibifreiðum sem áætlað er að komi til landsins á næsta ári. Þetta er í fyrsta sinn sem slökkviliðið fær fjórar nýjar bifreiðar í einu og verður það mikil lyftistöng fyrir starfsemina því veruleg þörf er orðin fyrir endurnýjun.
Undirskrift nýrrar brunavarnaáætlunar:
Á myndinni eru fv. Guðný Ívarsdóttir sveitastjóri Kjósahrepps, Ármann Halldórsson bæjarstjóri Kópavogs, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Björn Karlsson forstjóri Mannvirkjastofnunar, Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar, Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar.
Undirskrift samnings um 4 nýja slökkvibíla:
Á myndinni eru fv. Guðný Ívarsdóttir sveitastjóri Kjósahrepps, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Benedikt Einar Gunnarsson framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar og Co. hf., Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar, Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar.