• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 23. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stuðningur fyrir ungt fólk í vanda

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. desember 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirrituðu í gær styrktarsamning við Bergið – Headspace, stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri.

Markmiðið er að styðja við starfsemi Bergsins í að veita ungu fólki aðgang að ráðgjöf og stuðningi vegna geðrænna áskorana á borð við kvíða, þunglyndi, depurð, sjálfsvígshugsanir, skaðlega notkun vímuefna og áfallastreitu.

„Við þurfum virk og fjölbreytt úrræði án hindrana til að grípa ungt fólk þegar það þarf á hjálp að halda. Þannig komum við í veg fyrir stærri áskoranir síðarmeir og byggjum upp farsæla einstaklinga til langs tíma,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Sérstaklega er ætlað að styðja við ungt fólk sem ekki hefur sótt sér þjónustu annars staðar. Þá skal lögð áhersla á að brúa bilið yfir í aðra farsældarþjónustu, þá sérstaklega ef þörf er á langtíma eftirfylgd eða þjónustu.

,,Að bæta og auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu er forgangsmál. Þannig tryggjum við að sem flestir fái viðeigandi þjónustu á réttum tímapunkti. Þjónusta Bergsins við ungmenni fellur vel að þeim áherslum og hefur gefið góða raun,“ segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.

Samningnum er einnig ætlað að styðja við velsældaráherslur ríkisstjórnarinnar og stuðla að samþættingu þjónustu í þágur farsældar barna.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Vaxtabyrði húsnæðisláns hækkaði um 2,6 milljónir – Hvar er Þessi hagfræði kennd?

    Ólöglegt að verslanir taki ekki við reiðufé

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Miðbærinn í Reykjavík undir sjávarborði samkvæmt spálíkunum

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Guðmundur ráðinn aðstoðarmaður Hönnu Katrínar

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Við verðum að skipta um gjaldmiðil – Siðblindan fer með völdin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Undirskriftalisti um kröfu á uppsögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur

    146 deilingar
    Share 58 Tweet 37
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?