• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 29. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Siðblindar konur

Beita kvenkyns Íslendingar aldrei ofbeldi?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. október 2023
in Aðsent & greinar, Afþreying, Innlent
A A
0

Foreldrafirring er alvarlegt ofbeldi

Í fréttum RÚV, var frétt með fyrirsögninni „Foreldrafirringarheilkennið ekki til“ og vitnað í Hrefnu Friðriksdóttur, formann nefndar á vegum innanríkisráðuneytis sem fjallaði um barnalög, sem sagði ekki vísindalega sannað að sjúkdómshugtakið foreldrafirringarheilkenni (Parent Alienation Syndrome) væri til.

Hér verður því ekki haldið fram að um sjúkdóm sé að ræða, en benda má á að 95 ár liðu frá því að kenningar um Tourette komu fyrst fram, þar til þær urðu vísindalega sannað sjúkdómshugtak, en fyrstu kenningar um PAS eru 27 ára.
Vald lögheimilisforeldra
Hvaða nafn sem gefa má því andlega ofbeldi sem felst í tilefnislausum umgengnistálmunum, neikvæðri innrætingu, heilaþvotti eða kúgun á börnum, þá hjálpum við engum með hártogunum um það hvaða nafn á að gefa slíku ofbeldi eða afleiðingum þess fyrir börn.

Engu skiptir hvort afleiðingar þess andlega ofbeldis sem foreldri beitir barn heiti foreldrafirringarheilkenni, áfallastreituröskun eða eitthvað annað því hér er um gróft andlegt og tilfinningalegt ofbeldi á börnum að ræða sem framið er fyrst og fremst í skjóli þess valds sem lögheimilisforeldri hefur yfir barni.

Barn á allt sitt undir þessu foreldri og þarf að treysta því fyrir öryggi, velferð, fæði, klæði og öllu lífi sínu og er því algjörlega varnarlaust gagnvart ofbeldinu. Barn sem þolir alvarlegt andlegt ofbeldi af þessu tagi getur hvorki tjáð jákvæðar tilfinningar sínar í garð þess foreldris sem það má ekki að hitta, né borið hönd fyrir höfuð sér í ofbeldisfullu umhverfi lögheimilisins.

Lögin eru ónothæf

Í meistararitgerð Maríu Júlíu Rúnarsdóttur frá 2009, þar sem fjallað er um foreldrafirringu sem eina tegund tálmunar á umgengni, kemur fram að foreldrafirring er raunverulegur vandi og vel þekktur í íslenskum umgengnis- og forsjármálum. Jafnframt kom fram í rannsóknarritgerðinni að mikið vanti upp á að íslensk lög og verklagsreglur geti mætt þeim vanda þegar foreldri sem fer með lögheimilisvald beitir umgengnistálmunum og því ofbeldi sem þeim fylgir.

Í ritgerðinni koma fram sterk ummæli fagfólks sem tengist deilum foreldra í umgengnis- og forsjármálum: Þriggja félagsmálastjóra, þriggja fulltrúa sýslumanna, fjögurra sálfræðinga, starfsmanns barnahúss, fjögurra lögmanna og tveggja dómara. Nær allir þekktu til einkenna foreldrafirringar eins og þau eru skilgreind í kenningum hennar og voru sammála um að þetta er mjög alvarlegt ofbeldi gegn börnum. Í máli þeirra kom fram að:

n Úrræði sem lög leyfa í dag vegna tálmunarmála eru ónothæf. Algert úrræðaleysi ríkir.

n Skilgreina þarf foreldrafirringu sem andlegt ofbeldi í barnaverndarlögum.

n Skilgreina þarf tálmunarmál sem barnaverndarmál og meðhöndla þau eins og hvert annað ofbeldismál gegn börnum.

n Núverandi sáttameðferðarúrræði eru máttlaus.

n Skylda þarf foreldra til sáttameðferðar.

n Stytta þarf viðbragðstíma og málsmeðferð.

n Nauðsyn er á foreldrafræðslu um inntak foreldraábyrgðar og forsjár.

n Tálmunarmál eiga oft upptök sín í deilum um peninga (t.d. viðbótarmeðlag).

n Nauðsynlegt er að gefa dómurum heimild til að dæma sameiginlega forsjá.

n Horfast þarf í augu við þann veruleika, að til eru mæður sem beita börn sín ofbeldi.

n Hægt þarf að vera að færa forsjá tímabundið eða alfarið frá lögheimilisforeldri í tálmunarmálum, enda þurfi að koma börnum burt úr ofbeldinu.

n Auka þarf umræðu um umgengnistálmanir.

n Tálmunarmál verði að færa frá sýslumönnum til dómstóla.

Afleiðingar foreldrafirringar geta haft skelfilegar afleiðingar á líf barns fram á fullorðinsár. Vitað er um mál þar sem barn reyndi sjálfsmorð í kjölfar slíks ofbeldis. Einnig þekkist að börn hafni foreldri sem beitti slíku ofbeldi þegar þau komast til vits og ára.

Lögvarið ofbeldi

Ofbeldi hefur verið hluti af jafnréttisumræðunni um nokkurt skeið og þá er iðulega talað um „kynbundið ofbeldi“ í þeim skilningi að karlar eru þar gerendur, konur þolendur og börn óbeinir þolendur. Lög um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi eru nokkuð skýr og ströng viðurlög við slíku ofbeldi í hegningarlögum. En í lögunum er hvergi minnst á andlegt ofbeldi, nánast eins og það sé ekki til.

Og þá má spyrja: Er andlegt ofbeldi ekki til? Hvers vegna er talað um „kynbundið ofbeldi“? Beita kvenkyns Íslendingar aldrei ofbeldi? Hafa sumir rétt til að beita ofbeldi um fram aðra? Hverjir?

Svarið við þeirri spurningu gæti verið, að þeir sem beita ofbeldi sem ekki hefur verið skilgreint í lögum sem refsivert ofbeldi, hafi rétt löggjafans til þess að beita slíku ofbeldi.

Er virkilega til sá Íslendingur sem vill áframhaldandi lögverndun og refsileysi þeim lögheimilisforeldrum til handa, sem beita börn sín alvarlegu andlegu ofbeldi? Er til fólk sem óskar þess að íslensk börn séu áfram varnarlaus í höndum slíkra foreldra? Viljum við m.ö.o. að sumir foreldrar hafi leyfi löggjafans til að beita börn sín ofbeldi? Eða viljum við að hver einasti Íslendingur, og börn þar með talin, njóti verndar frá ofbeldi?

Greinin er birt til minningar um höfund hennar, Heimi Hilmarsson sem lést fyrir aldur fram vegna veikina. Heimir er fyrrverandi formaður Foreldrajafnréttis og vann ómetanlegt starf í þágu jafnréttis foreldra og að velferð barna almennt.

https://gamli.frettatiminn.is/24/01/2023/heimir-hilmarsson-lagdur-til-hinstu-hvilu/

Umræða
Share26Tweet16
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stakk þrjá með hnífi í borginni

    Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    72 deilingar
    Share 29 Tweet 18
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Pabbi þinn er vondur og hættulegur“ – ,,Èg elska þig pabbi“

    104 deilingar
    Share 42 Tweet 26
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?