• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Flóttamenn geta tilkynnt stríðsglæpi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. apríl 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ríkislögreglustjóri og héraðssaksóknari hafa sett upp tilkynningagátt á island.is þar sem flóttafólk frá Úkraínu getur tilkynnt hugsanlega stríðsglæpi. Rafræn eyðublöð á ensku og úkraínsku hafa verið gerð aðgengileg og leitast verður við að afhenda flóttafólki bæklinga þessa efnis um leið og það kemur til landsins.

Flóttamenn eru spurður hvort þeir hafi orðið fyrir eða orðið vitni að stríðsglæpum í Úkraínu frá upphafi stríðsins þann 24. febrúar árið 2022. Upplýsingar þar að lútandi gætu reynst dýrmætar í rannsókn á meintum stríðsglæpum í Úkraínu.

Eins og er hjá öðrum Evrópuþjóðum þá munu stjórnvöld meta gögnin sem berast í tilkynningum af þessu tagi og ef tilefni er til, deila þeim með Alþjóðlega sakamáladómstólnum. Hér á landi er það verkefni héraðssaksóknara að taka við tilkynningum af þessu tagi.

Hægt er að tilkynna um stríðsglæpi á island.is og er hægt að velja þar um tvö tungumál þ.e. ensku eða úkraínsku.

Tilkynnt um stríðsglæpi á island.is

Leiðtogafundur og stuðningur við Úkraínu

Á fjórða leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík 16.-17. maí verður stuðningur við Úkraínu og ábyrgðarskylda eitt helsta umfjöllunarefnið. Á fundi dómsmálaráðherra í London í mars var samþykkt að styrkja Alþjóðlega sakamáladómstólinn vegna málefna Úkraínu og sagði Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra við það tilefni:

„Kanna þarf allar leiðir til þess að réttlætið nái fram að ganga, án þess að grafa undan þeim stofnunum sem þegar eru til staðar. Þess vegna styður Ísland hugmyndir um stofnun Alþjóðlegrar saksóknarmiðstöðvar vegna glæpa gegn friði í Úkraínu, með það að markmiði að samræma rannsókn og varðveislu sönnunargagna vegna komandi réttarhalda.

Samstaða með Úkraínu er eitt meginþema í formennskutíð Íslands í Evrópuráðinu og það er von okkar að niðurstaðan af fjórða leiðtogafundi Evrópuráðsins, sem haldinn verður í Reykjavík, verði í þágu Úkraínu. Það er von okkar að formleg tjónaskrá þar sem safnað verður og haldið til haga yfirliti yfir bótakröfur, verði að veruleika á leiðtogafundinum í Reykjavík.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?