• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Á Íslandi búa tvær þjóðir – Evrópumeistarar með yfirdrátt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. maí 2023
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Evrópumeistarar með yfirdrátt

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir – Viðreisn

„Vandi okkar er sá að við höfum dálítið tapað trú fólks á að við náum verðbólgunni niður. Það verður að breytast“, sagði fjármálaráðherra þegar hann kynnti fjármálaáætlun sína í síðustu viku. Nú þegar áætlunin hefur verið kynnt blasir við að staðan er óbreytt. Fjármálaáætlun er verulega ólíkleg til auka væntingar um að verðbólga fari niður.

Fyrir utan hækkun á tekjuskatti fyrirtækja á næsta ári þá lýsti fjármálaráðherra óbreyttri stefnu í þessari áætlun. Engin innistæða er fyrir stórum orðum um að ríkissjóður muni loksins taka þátt í baráttunni við verðbólgu. Ekkert er talað um hvernig eigi að flýta því að greiða niður skuldir og lækka þannig ævintýralega háan vaxtakostnað íslenska ríkisins sem myndi hjálpa til við að ná niður verðbólgu.

Ríkisstjórnin ætlar að reka ríkið með halla út árið 2027. Fá Evrópuríki eru með hærra hlutfall vaxtakostnaðar en Ísland og vaxtakostnaður er þriðji stærsti útgjaldaliður ríkisins. Og Ísland ætlar áfram að blanda sér alvarlega í baráttuna um Evrópumeistaratitilinn í vaxtakostnaði.

Hagvöxtur minni á Íslandi

Vandi fólksins í landinu núna er að þetta aðgerðaleysi fjármálaráðherra mun kosta. Verðbólga til lengri tíma, áframhaldandi háir vextir og jafnvel 13. stýrivaxtahækkunin í maí mun bitna á buddu almennings. Áþreifanlega viðbragðið er skattahækkun á fyrirtæki í boði Sjálfstæðisflokksins sem lofaði lágvaxtaskeiði og skattalækkunum í síðustu kosningum.

Þeim loforðum hefur nú verið skipt út fyrir frasa eins og „frumjöfnuður ríkisins er góður“. En hvað þýðir það? Það er dálítið eins og að tala um góða afkomu heimilis áður en búið er að taka afborganir af lánum með í reikninginn. Það er heildarafkoman sem skiptir máli en ekki svipmynd af stöðunni á miðri leið. Og þjóð með tvöfalt hærra hlutfall vaxtakostnaðar en aðrar þjóðir hlýtur að miða við heildarafkomu. Fjármálaráðherra talar á sama tíma um öfundsverða stöðu Íslands hvað varðar mikinn hagvöxt. Þegar leiðrétt er fyrir fólksfjölgun er hagvöxtur á íbúa á Íslandi minni en í Evrópu. Hagvöxtur hér er minni.

Þau sem taka á sig þyngstu byrðarnar

Á Íslandi búa tvær þjóðir; þau sem lifa í krónuhagkerfinu og svo eru það stórfyrirtækin sem standa fyrir utan, fyrirtækin sem gera upp í dollara og evru – og taka ekki á sig þessar vaxtahækkanir. Verðbólga kemur alltaf verst niður á þeim sem minnst hafa á milli handanna. Ríkisstjórnin talar um að koma þeim hópi til aðstoðar. Það er bæði jákvætt og mikilvægt. Óbreytt ástand í ríkisfjármálum er á sama tíma mjög vondar fréttir fyrir millistéttina sem áfram á að taka á sig hækkandi vaxtakostnað og verðbólgu. Þetta eru barnafjölskyldur og ungt fólk sem er með lán sem hafa hækkað mikið. Aldrei hafa fleiri keypt sér sína fyrstu íbúð en á árunum 2020 og 2021. Niðurstaðan er sú að millistéttin í landinu og litlu og meðalstóru fyrirtækin taka á sig þyngstu byrðarnar vegna vaxtahækkana.

Ríkisstjórnin er skýr um að ætla ekki að skera niður í heilbrigðiskerfinu, löggæslu og almannatryggingum. Um þetta er samstaða á Alþingi. Tækifæri til hagræðingar í öðrum ríkisrekstri eru hins vegar ærin. Næg er yfirbyggingin og þetta verður að gera ef ætlunin er að ná verðbólgunni niður. En í fjármálaáætlun eru engar beinar tillögur eða aðgerðir í þá áttina. Auðvelda leiðin er farin, einstaka framkvæmdum frestað en hagræðing í sjálfum rekstri ríkisins lítil. Það er einfaldlega ekki verið að bregðast við stöðunni í dag heldur talað um mögulegar breytingar í framtíðinni sem hafa ekkert með daginn í dag að gera og eru sumar frekar óraunhæfar. Ríkisstjórnin er ekki að takast á við vandann heldur stendur kyrr og fylgist með. Horfir á eldsvoðann og bíður átekta eftir Seðlabankastjóri komi með slökkvitæki.

Þegar fjárlagafrumvarpið var kynnt síðasta haust varaði Viðreisn við því að ríkisstjórnin væri að skilja Seðlabankann einan eftir í glímunni við verðbólgu. Viðreisn var sannarlega ekki ein um þessar viðvaranir. Þetta gerðu aðilar vinnumarkaðarins sem og Seðlabankastjóri sjálfur. Það var bara ekki hlustað. Nú benda ASÍ og Samtök atvinnulífsins aftur á að fjármálaáætlunin taki ekki þau skref sem þarf til að ná verðbólgunni niður og verja þannig heimilin. Skyldi ríkisstjórnin hlusta í þetta sinn eða er henni meira kappsmál að sækja Evróputitilinn?

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?