• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þjóðarsátt um okurvexti?

Hagsmunasamtök heimilanna gefa út greinargerð um lánshæfismat Creditinfo

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. apríl 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fjármálaþjónusta – Lánshæfismat

Mat á lánshæfi er mælikvarði á hæfi lántakenda til lántöku. Sú krafa er lögð á lánveitendur með lögum um neytendalán (33/2013) að þeir meti lánshæfi umsækjenda áður en samningur um neytendalán er gerður. Með tilliti til hagsmuna lántakenda kynna Hagsmunasamtök heimilanna hér greinargerð sína um lánshæfismat Creditinfo og þær forsendur sem lagðar eru til grundvallar við útreikning þess. Markmið samtakanna er ávallt að standa vörð um hagsmuni lántakenda og tryggja vernd þeirra með tilliti til laga og reglna. Við hvetjum fólk til þess að leita til samtakanna ef þörf er á leiðsögn. Eftirfarandi er meginskilgreining lánshæfismatsins í lögum um neytendalán:

Sjá skilgreiningu í k-lið 5. gr. laga um neytendalán nr. 33/2013 sbr. 17. tölulið 4. gr. laga um fasteignalán til neytenda nr. 118/2016:

Lánshæfismat: Mat lánveitanda á lánshæfi lántaka byggt á upplýsingum sem eru til þess fallnar að veita áreiðanlegar vísbendingar um líkindi þess hvort lántaki geti efnt lánssamning. Lánshæfismat skal byggt á viðskiptasögu aðila á milli og/eða upplýsingum úr gagnagrunnum um fjárhagsmálefni og lánstraust. Lánshæfismat felur ekki í sér greiðslumat nema slíkt sé áskilið sérstaklega.

Lánshæfismat Creditinfo 

Markmið Hagsmunasamtaka heimilanna með úttekt á lánshæfismati fyrirtækisins er að veita félagsmönnum sínum hagsmunagæslu eins og best verður á kosið ásamt því að upplýsa almenning um meginþætti lánshæfismats. Það er eðlileg krafa að lánshæfismat banka eða fjármálastofnanna sé sanngjart og sveigjanlegt. Það á ekki síst við um einstaklinga sem staðið hafa frammi fyrir tímabundnum greiðsluvanda, eins og t.d. vegna slyss eða veikinda. Þegar slík tímabil eru genginn yfir, gæti viðkomandi viljað vinna að því að bæta lánshæfismatið sitt. Hagsmunasamtök heimilanna hafa ávallt lagt þunga áherslu á réttindi fólks til heimilis, þar á meðal í tengslum við fasteignalán, og leggja sig fram við að verja þann rétt. Hér má finna greinargerð samtakanna um lánshæfismat Creditinfo:

Greinargerð Hagsmunasamtaka heimilanna um lánshæfismat Creditinfo

Greinargerðin samtakanna var unnin í samráði við fyrirtækið sem veitti greinargóð svör og ítarupplýsingar. Þess ber að geta að Creditinfo er eina fyrirtækið á Íslandi sem heldur úti gagnagrunni um lánshæfismat og selur fjármálastofnunum aðgang að honum. Gagnagrunnur Creditinfo er rekin með leyfi frá Persónuvernd en háður vissum skilyrðum.

Viðskiptasaga bankanna og umdeildar skuldir 

Það er mikilvægt að hafa það í huga fyrir lántakendur að þó svo að lánshæfismat Creditinfo hafi náð útbreiddri notkun í þjónustu sinni við lánveitendur, þá byggja bankarnir einnig á viðskiptasögu sinna viðskiptavina í mati á lánshæfi. Það er að segja það sem kalla mætti þeirra eigið lánshæfismat eða aðra skráningu um viðskiptasögu. Hvoru tveggja, viðskiptasaga aðila og/eða lánshæfismat Creditinfo getur því haft áhrif á mat bankans á lánshæfi umsækjenda.

Við viljum vekja athygli á því að skráning umdeildra skulda á vanskilaskrá er óheimil. Skuld telst umdeild ef (meintur) skuldari hefur sannanlega komið andmælum við kröfu og ástæðu þeirra á framfæri við kröfuhafa og krafan hefur ekki verið staðfest með aðfararhæfum dómi eða ákvörðun sýslumanns um að fullnusta kröfuna.

Það er mikilvægt að hafa það í huga því vanskilaskráning vegur þungt í mati á lánshæfi. Í því sambandi bendum við á úrskurð Persónuverndar í máli nr. 2020010604 (sjá, nánar á vef Persónuverndar – 23. mars 2021). Þess má geta að kvörtun málsins var gerð og henni fylgt eftir af Hagsmunasamtökum heimilanna. 

Hagsmunasamtök heimilanna – Óháð ráðgjafarþjónusta á fjármálamarkaði
Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?