Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bendir á að fólk hringi í Neyðarlínuna, eftir sjúkrabíl til að losna við að bíða í biðstofunni á Bráðamóttöku Landspítalans. Slökkviliðið birti yfirlýsingu um málið sem er eftirfarandi:
Ágætu lesendur
Þegar okkar fólk fer í sjúkraflutninga í heimahúsum til dæmis, þá heyrum við oft að skjólstæðingar hafi hringt eftir sjúkrabíl til að losna við að bíða í biðstofunni á Bráðamóttöku. Eins lesum við eða hlustum á þetta endrum og sinnum í fjölmiðlum.
Sko… þetta virkar ekki alveg svona. Eins og nánast allir íbúar þessa lands vita, þá er alltaf mikið álag á Bráðamóttöku í Fossvogi. Hverju sinni geta verið fjölmörg tilfelli af mjög veikum einstaklingum sem liggja inni á deildinni, mögulega veikari en sá einstaklingur sem hringir og biður um sjúkrabíl til að sleppa við röðina. Það kemur fyrir þegar þetta gerist, að sá eða sú sem við erum að koma með er settur fram í biðstofu – einmitt vegna þess að það þarf að forgangsraða eftir eðli veikinda. Eins getur verið að einstaklingur sem kemur í móttökuna fari beint inn, vegna þess að veikindin eru það alvarleg.
Þannig að við biðjum ykkur góðir lesendur – ef þið heyrið fólk tala um að þetta sé stórsniðug hugmynd – útskýrið þá fyrir viðmælandanum að þetta sé ekki rétt. Fjöldi veikra og slasaðra hverju sinni inni á Bráðamóttöku ræður forgangsröðun.
Við erum alltaf til staðar fyrir ykkur.
Umræða