• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 10. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

2.000 umsækjendur um alþjóðlega vernd í húsnæði á vegum Vinnumálastofnunar

2.000 umsækjendur um alþjóðlega vernd í húsnæði á vegum Vinnumálastofnunar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. maí 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Tæplega 2.000 umsækjendur um alþjóðlega vernd dvelja nú í búsetuúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar en stofnunin þjónustar umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi. Þegar stofnunin tók við þjónustunni frá Útlendingastofnun um mitt síðasta ár voru um 700 umsækjendur búsettir í húsnæði ætluðu umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Aldrei hafa jafnmargir sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi en um þessar mundir. Það sem af er ári eru umsækjendur orðnir fleiri en á sama tíma í fyrra eða um 2.000 talsins. Að jafnaði hafa um 100 einstaklingar á viku sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá því í janúar sl.

Tölfræðina má nálgast á vef Stjórnarráðsins en þar sést meðal annars að frá áramótum hafa ríflega tvisvar sinnum fleiri sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi en allt árið 2021. Flest fólkið kemur frá Venesúela og Úkraínu en fjöldi ríkisfanga er 49. Börn eru 20% hópsins.

  • Lykilupplýsingar á vef Stjórnarráðsins

Þau sem sæta ofsóknum í heimalandi sínu eða eiga þar á hættu til að mynda pyndingar eða ómannúðlega meðferð eiga rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi sem flóttafólk. Þau sem koma hingað til lands og óska eftir viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamenn teljast vera umsækjendur um alþjóðlega vernd. Áður var talað um hælisleitendur í þessu samhengi eða um fólk í leit að hæli, það er griðastað.

Flóttafólk sem leitað hefur skjóls á Íslandi frá Úkraínu eftir innrás Rússlands þar í landi hefur fengið dvalarleyfi hérlendis á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Með nýlegum breytingum á lögum um atvinnuréttindi útlendinga má fólk með slíkt dvalarleyfi nú strax hefja störf hér á landi, en fyrir lagabreytinguna þurfti viðkomandi að fá veitt atvinnuleyfi til að geta hafið störf á innlendum vinnumarkaði.

Samræmd móttaka flóttafólks er hugsuð fyrir þau sem fengið hafa alþjóðlega vernd og þurfa stuðning við að ná rótfestu hér á landi. Tólf sveitarfélög hafa undirritað samninga um svokallaða samræmda móttöku flóttafólks.

 

 

 

 

 

 

 

 
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Netsvindl, fjárkúgun og fleira

    Laus hundur veittist að barni

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • „Bankinn stjórnar lífi þínu“ – margir viðskiptavinir reiðir vegna eftirlits bankanna

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Ég á kvótann með þjóðinni – voru með útsýnisflug fyrir kvótaþega“

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Vaxandi austan- og suðaustanátt – norðanhríð á norðvesturlandi

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?