Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mælti fyrir tillögunni fyrr í þessum mánuði og að henni standa formenn og fulltrúar allra stjórnmálaflokka á Alþingi og fjallað var um málið á vef ríkisútvarpsins.
Úkraínsk stjórnvöld höfðu áður óskað eftir stuðningi Íslands í þessum efnum og verður utanríkisráðherra falið að halda utan um málið. Hægt er að starfrækja sjúkrahúsið án tengingar við innviði. Um það bil hálft ár tekur að gera það klárt og kostnaðurinn nemur 1,2 milljörðum króna.
Um er að ræða neyðarsjúkrahús fyrir særða hermenn í Úkraínu og hefur utanríkisráðherra verið falið að halda utan um málið. Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi fyrir særða hermenn í Úkraínu.
Einn milljarður króna í aðstoð til Úkraínu
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók á dögunum þátt í framlagaráðstefnu til stuðnings Úkraínu sem fram fór í Varsjá í Póllandi.
Á ráðstefnunni tilkynnti forsætisráðherra um verulega aukin framlög Íslands til mannúðarmála og efnahagsaðstoðar til Úkraínu sem nema nú samtals 1 milljarði króna. Fyrri framlög námu 575 milljónum króna en Katrín tilkynnti um 425 milljónir til viðbótar. Framlag Íslands skiptist þannig að framlög til mannúðarmála nema 510 milljónum króna, 230 milljónum króna verður ráðstafað síðar til mannúðarmála og efnahagsstuðnings við Úkraínu, og 260 milljónir fara í sjóð á vegum Alþjóðabankans sem styðja mun efnahag Úkraínu.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra: „Með þessu nær tvöföldum við núverandi stuðning okkar við Úkraínu, þar sem megináherslan er áfram á mannúðarmál, stuðning við fólk á flótta og viðkvæma hópa en við leggjum einnig fram efnahagsaðstoð. Við Íslendingar viljum leggja okkar af mörkum á þeim sviðum þar við getum gert gagn.“