Lögreglan í Portúgal sem rannsakar hvarf Madeleine McCann sagðist hafa fundið nokkra hluti í leitaraðgerðum í síðustu viku í portúgölsku uppistöðulóni. Kafarar rannsökuðu vatnið og leitað var á stóru landsvæði. Leitin í Portúgal var framkvæmd eftir beiðni frá þýsku lögreglunni.
Í júní 2020 lýsti þýska lögreglan því yfir að hún teldi að Madeleine væri látin og að hinn grunaði þjóðverji, Christian B væri líklega ábyrgur fyrir dauða hennar. Í dag sögðu þýsk yfirvöld að rannsókn þeirra á hinum grunaða myndi halda áfram í nokkurn tíma.
„Það var lagt hald á fjölda muna í aðgerðinni sem verða metnir á næstu dögum og vikum. Það er ekki enn hægt að segja til um hvort sumir munirnir séu í raun tengdir Madeleine McCann málinu. Lögreglan í Portúgal þakkar lögreglunni frá Bretlandi og starfsfólki hjá alríkisglæpalögreglunni í Þýskalandi fyrir „framúrskarandi og mjög uppbyggilega“ samvinnu.“
Christian B situr nú í fangelsi fyrir að nauðga 72 ára gamalli konu á sama svæði á Algarve svæði og Madeleine hvarf, en hefur ekki verið ákærður fyrir neinn glæp sem tengist hvarfinu og hefur neitað sök.