• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Taktlaus hagstjórn?

Borin von að ná niður verðbólgu á meðan nafnlaunahækkanir eru miklar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. júní 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Samtök atvinnulífsins skrifa frétt um efnahagsmál

Ákvörðun Seðlabankans um að hækka vexti um 125 punkta kom flestum á óvart en greiningaraðilar höfðu gert ráð fyrir 75-100 punkta hækkun. Hagtölur hafa hins vegar verið að þróast með þeim hætti að enn er mikil spenna í hagkerfinu og verðbólguhorfur hafa ekki þróast með þeim hætti sem vonast var til.

Hærri vextir auka kostnað þeirra fyrirtækja og heimila sem eru með lán á breytilegum vöxtum. En mikil verðbólga rýrir kaupmátt allra og kemur verst við þá sem minnst hafa milli handanna. Seðlabankinn á því enga góða kosti í stöðunni en það er hlutverk peningastefnunefndar að halda verðbólgu við markmið Seðlabankans.

Þó að vextir kunni að þurfa að hækka til að ná niður verðbólgu mun hækkandi vaxtastig án efa koma niður á ýmiss konar mikilvægri fjárfestingu, svo sem í íbúðarhúsnæði. Fólksfjölgun er mikil og eftirspurn hefur haldist sterk á íbúðamarkaði. Aukið framboð er því nauðsynlegt til að mæta þessari grunnþörf.

Borin von að ná niður verðbólgu á meðan nafnlaunahækkanir eru miklar

Seðlabankinn var enn á ný með skýr skilaboð til aðila vinnumarkaðarins um að sýna ábyrgð við kjarasamningsborðið. SA viðurkenna svo sannarlega þá ábyrgð. Það má sín hins vegar lítils ef sá skilningur ríkir ekki beggja megin borðsins.

Seðlabankastjóri talaði um að það væri borin von að ná niður verðbólgu á meðan laun hækka í þeim takti sem verið hefur á meðan framleiðniaukning er ekki meiri en raunin er. Það er því engum blöðum um það að fletta að launahækkanir eru að setja aukinn þrýsting á verðbólgu sem skilar sér í miklum vaxtahækkunum. Í þessu samhengi talaði aðalhagfræðingur Seðlabankans um þyngdarlögmál hagfræðinnar – nafnlaunahækkanir langt umfram framleiðnivöxt geti ekki gengið upp til lengdar án leiðréttingar. Við erum nú að upplifa slíka leiðréttingu en raunlaun eru farin að lækka eftir tímabil mikilla raunlaunahækkana.

Aðhald ríkisfjármálanna ætti að vera meira

Seðlabankinn framkvæmdi greiningu á áhrifum ríkisfjármála á verðbólguhorfur og hvernig aukið aðhald hjá ríkissjóði gæti dregið úr verðbólguþrýstingi. Þannig megi draga úr þörf fyrir vaxtahækkanir og hafa jákvæð áhrif á fjárfestingu. Eins og fram kemur í Peningamálum hefur afkoma ríkissjóðs batnað hægar en ætla mætti út frá efnahagsumsvifum. Æskilegt væri að aðhaldið væri meira.

Þó að skattahækkanir væru til þess fallnar að draga með óbeinum hætti úr einkaneyslu væru áhrif aðhaldsaðgerða á útgjaldahlið meiri og skilvirkari samkvæmt greiningu Seðlabankans. Óvíða er skattheimta meiri en hér á landi og því væru frekari skattahækkanir óheillaskref. Opinber útgjöld hafa hins vegar vaxið úr hófi fram en líkt og SA hafa ítrekað bent á þarf að koma böndum á þann útgjaldavöxt.

Því miður virðast skilaboðin um að allir hagstjórnaraðilar þurfi að ganga í takt, til að ná niður verðbólgu og vaxtastigi, ekki vera að komast nægilega skýrt til skila. Seðlabankinn hefur stigið þung skref í átt að verðstöðugleika en baráttan verður ekki unnin fyrr en allir hagstjórnaraðilar stefna í sömu átt. Að öðrum kosti verður niðurstaðan þrálát verðbólga og óásættanlega hátt vaxtastig.

Umsögn SA um fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028.

Umsögn SA um fjármálastefnu fyrir árin 2022-2026.

Samtök atvinnulífsins skrifa frétt um efnahagsmál á vef sínum.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?