• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 21. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Ekki kaupa húsgögn eða gjafavörur! – Sparaði 65% með því að sniðganga íslenskt okur!“

,,Ekki kaupa húsgögn eða gjafavörur! – Sparaði 65% með því að sniðganga íslenskt okur!“

,,Nú nálgst jólin og við höfum öll val um það hvernig við ætlum að komast í gegnum þá kaupmanna- og neysluhátíð"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. október 2025
in Innlent, Neytendur
A A
0

Íslendingar lepja dauðann úr skel þegar kaupmáttur fólks er skoðaður hér á landi. Afborganir fasteignalána hafa hækkað um allt að 94% sem er oftast stærsti liðurinn í heimilisbókhaldi þeirra sem eru með fasteignalán

Nú nálgst jólin og við höfum öll val um það hvernig við ætlum að komast í gegnum þá kaupmanna- og neysluhátíð. Ég myndi t.d. ráðleggja öðrum að gera það sama og ég hef gert.

Get keypt tvö sófasett á sama verði og eitt hér á Íslandi sem eru eins

Ég ætlaði að kaupa húsgögn fyrir jól en vegna verðbólgu og hækkunar á þeirri vöru hef ég ákveðið að bíða með það þangað til krónan styrkist (sem er 40% undir raungengi) og verðbólgan minnkar. Það gerist einhverntíman með nýrri ríkisstjórn og sófasettið getur alveg beðið eftir því eins og ég.

Mjög líklega mun ég kaupa sófasettið í gegnum erlenda síðu þar sem ég fæ það á miklu betra verði og reyndar er verðmunurinn það mikill að ég get keypt tvö sófasett á sama verði og eitt alveg eins, hér á Íslandi.

Þá hef ég verslað allar gjafavörur í jólagjafir, á erlendum síðum og fæ oft þrjá til fjóra hluti erlendis á sama verði og einn hér á Íslandi. Sleppið alveg að kaupa gjafavörur á Íslandi, því þar er mesta okrið!

Ég hef farið í sérverslanir hér á landi eins og t.d. húsgagnaverslandir sem selja einnig gjafavörur. Ég tek bara myndir af því sem ég skoða og læt Google finna samskonar vöru með því að leita eftir myndinni eins og forritið býður upp á.

Ég spara líka um 60-70% á því að versla allt erlendis og sleppi þannig að eiga viðskipti við ,,snobb búllur“ með mikla og dýra yfirbyggingu sem leggja stundum á vörurnar frá 30-50% og stundum upp í mörg hundruð prósent. Það er nóg að sjá bruðlið hjá eigendum og t.d. bílaflota þeirra, til að átta sig á okrinu, sem við erum látin borga.

Öll nauðsynjavara er margfalt dýrari hér en í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við og enn dýrari miðað við þau lönd sem við berum okkur sjaldnar við.

Kaup og rekstur bifreiða er einnig margfalt dýrari hér eins og nánast allt annað. Við erum með hæsta eldsneytis- og tryggingaverð í heimi og búum við endalaust okur kaupmanna og þjónustufyrirtækja.

Þá hefur matvara margfaldast í verði og er ekki í neinu samræmi við heimsmarkaðsverð á matvöru. Ég hef t.d. tekið eftir því að matvöruverslanir hækka sérstaklega álagningu á vörum sem neytendavakt ASÍ vaktar ekki. Ég held mjög nákvæmt heimilisbókhald fyrir hvert ár og hef margsinnis rekið mig á þetta!  Kaupmenn eru í eðli sínu sumir hverjir siðblindir glæpamenn og vita hvernig best er að vera undir radarnum!

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og stutt er til jóla, það er því góður tími núna að panta jólagjafirnar á netinu og spara þannig tugi eða hundruði þúsunda, allt eftir því hversu margar gjafir eru gefnar. Ég var að klára mín innkaup og sparaði 65% með því að sniðganga íslenskt okur!

Share204Tweet128
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fjárhagsleg afdrif fólks sem bjó eða starfaði í Grindavík

    Um 800 manns að störfum í Grindavík í byrjun október

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Undirskriftalisti um kröfu á uppsögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur

    143 deilingar
    Share 57 Tweet 36
  • Rætt um mikilvægi sjálfsfróunar í fermingarfræðslu – ,,Alltaf í sleik við Jesús“

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Ráðist á konu sem var í bifreið sinni

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • ,,Ekki kaupa húsgögn eða gjafavörur! – Sparaði 65% með því að sniðganga íslenskt okur!“

    510 deilingar
    Share 204 Tweet 128
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?