• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Erfiðleikar ekkju vegna mjólkursöluleyfis

Eftirlit með velferð hrossa í kjölfar ábendingar

Sendi Matvælastofnun ábendingu og til forsætis- og matvælaráðherra, alþingismanna sem og fjölmiðla og birti hana á samfélagsmiðlum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. október 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0
Matvælastofnun er opinber eftirlitsaðili með dýravelferð á Íslandi. Stofnunin fer með reglubundið eftirlit með öllu dýrahaldi en tekur þar að auki við ábendingum frá almenningi um slæma meðferð á dýrum. Slíkar ábendingar berast stofnuninni daglega og eru allar teknar til skoðunar. Þær snúa yfirleitt að þeim dýrum sem blasa við almenningi, t.d. gæludýrum og hrossum. Stofnunin er þakklát fyrir þessar ábendingar og þess eru mörg dæmi að þær hafi leitt til hraðari úrbóta á velferð viðkomadi dýra en ella hefði orðið.

Rétt er að hafa í huga að Matvælastofnun er bundin af ákvæðum stjórnsýslulaga um rannsóknarskyldu, jafnræði og meðalhóf við meðferð mála. Hún er einnig bundin af ákvæðum upplýsingalaga um að hún megi ekki veita upplýsingar um einkamálefni fólks, þ.á.m. umráðamanna dýra. Loks er hún bundin af ákvæðum persónuverndarlaga sem banna miðlun á upplýsingum um refsiverða háttsemi. Upplýsingar sem stofnunin getur veitt á opinberum vettvangi takmarkast því af ofangreindu.

Fyrir nokkrum dögum barst Matvælastofnun ábending frá einstaklingi sem sneri að hrossahaldi á tilteknum bæ á Vestfjörðum, nokkuð afskekktum. Umræddur einstaklingur hefur áður sent ábendingu vegna sama dýrahalds. Höfundur ábendingarinnar lét ekki duga að senda Matvælastofnun ábendinguna heldur sendi afrit af henni til forsætis- og matvælaráðherra, alþingismanna og fjölmiðla auk þess að birta hana á samfélagsmiðlum. Stofnunin gerir ekki athugasemdir við það, en í ábendingunni er gefið í skyn að Matvælastofnun sinni ekki skyldum sínum við eftirlit með dýravelferð og þetta tiltekna mál talið sanna það.

Af því tilefni telur stofnunin rétt að koma eftirfarandi á framfæri: Matvælastofnun flokkaði ábendinguna sem alvarlega. Rannsókn málsins var sett í forgang og fóru starfsmenn stofnunarinnar á vettvang daginn eftir að hún barst. Alls voru 24 hross á bænum. Þau voru á góðri beit á rúmgóðu landi, með náttúrulegu skjóli og góðum aðgangi að vatni. Hrossin voru spök og tækifæri gafst til að skoða hvert og eitt og leggja mat á ástand þeirra. Niðurstaðan var sú að engin frávik komu fram varðandi velferð hrossanna og engin bráð hætta steðjaði að þeim.

Við eftirlit síðastliðið vor komu fram alvarleg frávik vegna þriggja hrossa á umræddum bæ. Eigandinn brást þá við kröfum Matvælastofnunar um úrbætur án þess að kæmi til þvingunaraðgerða.

Ekki er fyrirhugað að hross verði haldin á bænum í vetur og hefur stofnunin sannreynt að ráðstafanir hafa verið gerðar þar að lútandi.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?