Hópbifreið var ekið á ferðamann við flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærmorgun. Neyðarlínu barst tilkynning um slysið laust eftir klukkan tíu. Þetta staðfestir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum í viðtali við Rúv sem birti frétt um málið.
Úlfar segir þar að ferðamaðurinn hafi verið fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið í Keflavík og þaðan á Landspítalann að lokinni skoðun og að ástand ferðamannsins sé eftir atvikum gott. Ekki sé ljóst hvernig slysið atvikaðist. Málið sé í rannsókn.
Umræða