Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja ekki að COP28 ráðstefnan í Dubai skili einhverjum árangri. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór á vefsíðunni í morgun.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að loftslagsráðstefnan COP28 í Dubai skili einhverjum árangri?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 96,5%
Já: 2,9%
Hlutlaus: 0,5%
Umræða