• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríflegur afgangur af rekstri Hafnarfjarðarbæjar og álagningarhlutföll fasteignagjalda lækka

Hafnarfjörður

Hafnarfjarðarbær boðar miklar breytingar á leikskólastarfi

Aukinn sveigjanleiki í kerfinu og gjöld lækka umtalsvert fyrir sex tíma dvöl

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. desember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Í upphafi árs 2023 steig Hafnarfjarðarbær tímamótaskref í eflingu og þróun á leikskólastarfi til framtíðar með ákveðnum aðgerðum og voru um leið boðaðar enn frekari aðgerðir til að svara betur þörfum leikskólastarfsins. Nú hafa þau skref verið stigin og miklar breytingar boðaðar á leikskólastarfi í bænum. Breytingarnar eru í meginatriðum þessar:

  • Skipulagi leikskóladagsins verður skipt upp í kennslu og frístundastarf
  • Leikskólagjöld fyrir 6 tíma vistun lækka umtalsvert
  • Leikskóladagatal með skipulagðri kennslu verður 180 dagar
  • Stytting vinnuvikunnar hjá starfsfólki fest niður á ákveðna daga og tímabil
  • Boðið upp á sveigjanlegan dvalartíma barna
  • Opnunartími leikskóla frá 7:30-16:30

„Við boðum miklar breytingar umfram þær sem við höfum þegar hrint í framkvæmd á árinu. Árangur þeirra aðgerða er sýnilegur sérstaklega þegar litið er til hlutfalls fagmenntaðra innan leikskólanna sem hefur fjölgað á árinu. En ljóst var að grípa þyrfti til enn frekari breytinga á skipulagi leikskóladagsins til að koma til móts við væntingar og kröfur. Dagvistun barna er gríðarstórt viðfangsefni samfélagsins alls og það er forgangsmál að þetta kerfi virki. Því þarf að leita allra leiða í því skyni að þróa leikskólastarf til að geta boðið þá þjónustu sem nauðsynleg er. Ég bind miklar vonir við að við séum að móta og skapa nýja framtíð leikskólanna með þessum breytingum,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Aðgerðirnar sem farið var í fyrr á árinu fólu m.a. í sér 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk leikskólanna, aukið samræmi milli fyrstu skólastiganna, heimgreiðslur til foreldra og stofn- og aðstöðustyrki til dagforeldra. Samhliða var boðuð endurskipulagning leikskóladagsins og nýverið skilaði starfshópur af sér skýrslu með ellefu aðgerðum sem byggja á ítarlegum greiningum og samtali við hlutaðeigandi aðila leikskólasamfélagsins.

Tvíþætt starfsemi innan leikskóladagsins – kennsla og frístundastarf

Starfshópurinn skilaði tillögum sínum í lok nóvember 2023 og innleiðing þeirra samþykkt á fundi fræðsluráðs. Í grunninn fela tillögur starfshóps í sér að skilgreina tvíþætta starfsemi innan leikskóladagsins. Annars vegar sem kennslu og hins vegar sem frístundastarf út frá faglegum sjónarmiðum og skipulagi innan dagsins og leikskólaársins. Sú breyting verður gerð á leikskóladagatali að það sé sambærilegt við skóladagatal grunnskóla með 180 kennsludögum á ári og dagana umfram það er starfrækt frístundastarf með öðrum áherslum.

Ítarleg lýsing á tillögum starfshópsins:

  1. Skipulag leikskóladagsins – starfsemi innan leikskóladagsins og leikskólaársins verður tvíþætt. Annars vegar kennsla og hins vegar frístundastarf
  2. Leikskóladagatal – kennsludagar verða 180 dagar yfir árið. Aðra daga er boðið upp á frístundastarf með sama vistunartíma. Þá daga þurfa foreldrar og forsjáraðilar að skrá börn sín sérstaklega.
  3. Stytting vinnuvikunnar – tillaga um styttingu er þegar komin til framkvæmda. Fagmenntaðir taka út uppsafnaða styttingu á frístundadögum. Skóla- og frístundaliðar taka sína vinnutímastyttingu innan hvers mánaðar.
  4. Sveigjanlegur dvalartími barna – foreldrum stendur til boða sveigjanlegur daglegur dvalartími með að hámarki 42,5 tímum á viku sem er meðaltímafjöldi í íslenskum leikskólum.
  5. Opnunartími leikskóla – opnunartími verður frá kl. 7:30 – 16.30 frá og með hausti 2024 í ljósi þess að nýting tímans frá 16.30 – 17:00 hefur minnkað umtalsvert undanfarin ár.
  6. Gjaldskrá – leikskólagjöld fyrir 8 klukkustundir á dag haldast óbreytt. Leikskólagjöld fyrir 6 klukkustunda vistun á dag lækka umtalsvert eða sem jafngildir 30% af heildarkostnaði af 40 klukkustunda vistun. Markmiðið er að hvetja fjölskyldur til að stytta viðveru barna og minnka þannig álagið á þau. Kostnaður við máltíðir er óbreyttur og áfram verða tekjutengdir afslættir og systkinaafslættir.
  7. Barngildi – að baki hverju stöðugildi í leikskóla í dag eru að meðaltali 8 barngildi þar sem hver árgangur er með mishátt vægi eftir aldri. Viðmið um grunnmönnun verða uppfærð og hvert stöðugildi mun við breytinguna vera með færri barngildi. Markmiðið er að draga úr álagi á börn og styrkja mönnun í leikskólunum. Breytingin hefur ekki áhrif á heildarfjölda barna í leikskólum bæjarins.
  8. Undirbúningstímar – rýni á nýtingu undirbúningstíma. Vægi undirbúningstíma hefur verið aukið til muna undanfarin ár og mikilvægt að skoða hvaða aðferðir og leiðir nýtast best til framþróunar leikskólastigsins.
  9. Endurmenntun leikskólakennara – þrír skipulagðir endur- og símenntunardagar verða fyrir leikskólakennara ár hvert í lok formlegs skólastarfs í júní og/eða í upphafi skólaárs.
  10. Íslenskukennsla fyrir starfsfólk leikskóla með annað móðurmál en íslensku – störf þessa hóps eru leikskólum virkilega dýrmæt og vilji til að styrkja hópinn faglega sem og persónulega með fagtengdum námskeiðum í íslensku á vinnutíma.
  11. Þjálfun og leiðsögn starfsfólks – aukin fagtengd fræðsla til nýliða í störfum í leikskólum Hafnarfjarðar. Rannsóknir sýna að markviss fræðsla, leiðsögn og þjálfun eykur starfsánægju og öryggi strax frá upphafi auk þess sem sýnt hefur verið fram á lægri starfsmannaveltu.

Markmið allra þessara aðgerða, bæði þeirra sem komnar eru til framkvæmda og þeirra sem boðaðar eru á nýju ári, er að auka sveigjanleika innan skóladagsins allt árið um kring og fjölga fagfólki í leikskólum bæjarins. Aðgerðirnar verða kynntar fyrir foreldrum og forsjáraðilum í upphafi á nýju ári. Hafnarfjarðarbær fékk á árinu hvatningarverðlaun leikskóla,

Orðsporið, fyrir að samræma starfstíma í leik- og grunnskólum bæjarins og samræma skólaárið á þessum tveimur skólastigum. Innleiðing á einu leyfisbréfi til kennslu árið 2019 varð m.a. til þess að fleiri hafa síðan þá kosið að starfa innan grunnskólanna og ástæðan sögð starfsumhverfið, sveigjanleikinn og skipulag skólaársins. Miklar vonir eru bundnar við að nýtt fyrirkomulag og aðgerðir snúi þessari þróun við, efli og styrki fagstarf innan leikskólanna enn frekar til framtíðar og að fjölgun verði í hópi fagmenntaðra á mikilvægum mótunarárum í lífi ungra barna.

 

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?