• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreind svæði í Grindavík

Ríkið kaupir eignir Grindvíkinga

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. febrúar 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0
Ríkissjóður mun bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla. Umfang aðgerðarinnar er metið allt að 61 milljarði króna. Frumvarp þessa efnis var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag og hefur verið birt í samráðsgátt. Þetta er liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem miða að því að skapa forsendur fyrir öruggri framtíð fyrir Grindvíkinga og kynntar voru 26. janúar síðastliðinn. Ríkisstjórnin hefur unnið málið með samráðshópi allra þingflokka og kynnt það fyrir bæjarstjórn Grindavíkur. Frumvarpið verður lagt fram á Alþingi í næstu viku.

Félag í eigu ríkisins mun annast framkvæmdina

Til þess að framkvæma aðgerðina mun ríkið stofna og fjármagna sérstakt félag, Fasteignafélagið Þórkötlu. Það mun hafa það hlutverk að kaupa fasteignirnar og bera ábyrgð á rekstri þeirra fyrir hönd ríkissjóðs. Félagið mun bera allan umsýslukostnað vegna kaupa á fasteignunum. Gert er ráð fyrir að félagið eigi tilkall til mögulegra bóta úr Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) og beri mögulegan kostnað við niðurrif komi til þess.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að fasteignirnar verði keyptar á verði sem nemur 95% af brunabótamati að frádregnum veðskuldum. Kaupverðið byggir á samsvörun við bótagreiðslur úr Náttúruhamfaratryggingu Íslands en ljóst er að mikil óvissa er um framtíð íbúðarhúsnæðisins, t.d. möguleg förgun.

Fjármögnun félagsins verður með tvenns konar hætti. Í fyrsta lagi, með láni lánveitenda í Grindavík og ríkissjóðs. Þannig mæta lánveitendur þeirri óvissu sem er uppi um virði eigna á svæðinu. Í öðru lagi, með eiginfjárframlagi frá ríkissjóði. Enn er gert ráð fyrir að hluti af framlagi ríkissjóðs sé fjármagnaður með eignum NTÍ.

Stefnt að því að frumvarp verði lagt fram í næstu viku

Til að gefa Grindvíkingum tækifæri til að kynna sér efni frumvarpsins og koma afstöðu sinni á framfæri verður það birt í samráðsgátt stjórnvalda síðar í dag. Opið verður fyrir athugasemdir til mánudags, en vegna mikilvægis þess að hraða meðferð málsins er ekki svigrúm til að veita rýmri tíma. Í framhaldinu verður unnið úr athugasemdum og mun fjármála- og efnahagsráðherra leggja frumvarpið fram á Alþingi í næstu viku.

Upplýsingasíða og umsóknir fyrir Grindvíkinga á Ísland.is

Þegar frumvarpið hefur verið afgreitt frá Alþingi verður leiðbeiningum um hvað Grindvíkingar þurfa að undirbúa fyrir umsóknina sem og umsókn um uppkaup komið fyrir á upplýsingasíðu Grindvíkinga á Ísland.is. Sömuleiðis verður þar að finna algengar spurningar varðandi undirbúning og útfærslur aðgerðarinnar. Er þetta gert til að auðvelda afgreiðslu á stuðningi stjórnvalda til Grindvíkinga. Umsókn um uppkaup verður gefinn rúmur tími og verður opið fyrir þær til 1. júlí 2024. Þeim sem geta ekki nýtt sér stafræna umsókn á Ísland.is eða eru undanþegnir lögheimilisskráningu á þessum tíma er bent á þjónustumiðstöð Grindvíkinga í Tollhúsinu.

Spurt og svarað

  • Spurt og svarað um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík 

Næstu skref

  • Frumvarp í samráðsgátt
  • Á mánudag: Samráði lýkur
  • Í næstu viku: Frumvarp lagt fram á Alþingi
  • Þegar frumvarp er samþykkt: Vefgátt komið upp og kaupferli hefst
  • Til 1. júlí: Grindvíkingar hafa rúman tíma til þess að óska eftir sölu íbúðarhúsnæðis

https://frettatiminn.is/17/01/2024/landsmenn-latnir-greida-100-thusund-milljona-onyt-ved-bankanna/

 

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?