• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Ég gef kost á mér fyrir þá sem þrá breytingar frá gömlum gildum“

Ásdís Rárn Gunnarsdóttir, fréttatilkynning. mynd-FB,

,,Ég gef kost á mér fyrir þá sem þrá breytingar frá gömlum gildum“

Fréttatilkynning frá Ásdísi Rán - „Eftir mikla og góða hvíld undir glæsilegasta feld landsins þá hef ég ákveðið að láta undan pressu"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. mars 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ásdís Rán Gunnarsdóttir sendi frá sér neðangreinda færslu á samfélagsmiðlinum Facebook undir yfirskriftinni „Fréttatilkynning“

Fréttatilkynning

Eftir mikla og góða hvíld undir glæsilegasta feld landsins þá hef ég ákveðið að láta undan pressu og hef opnað meðmælendalista á island.is þar sem mínu fólki gefst tækifæri á að mæla með mér í hlutverk framherja íslands, þetta þýðir samt ekki að ég sé búin að bjóða mig formlega fram heldur er ég búin að bjóða mig óformlega fram!

Ég kem ekki til með að hefja almenna framboðs baráttu þ.e.a.s. ferðalög, auglýsingar fyrr en næg meðmæli hafa safnast á listann minn. Með þessum hætti gef ég þjóðinni síðasta orðið um það hvort ég bjóði mig formlega fram eða ekki eins og sönnum forseta sæmir 😉

Mér þykir ótrúlega vænt um það að fá að gefa kost á mér í þeim tilgangi að heiðra fjölbreytileikann í forseta baráttunni, styðja við jafnrétti og gefa fleirum tækifæri á að senda inn frambjóðanda sem höfðar til annara hópa en nú þegar eru komnir.

Ef mér hlotnast sá heiður að það safnist næg meðmæli á næstu vikum þá að sjálfsögðu tek ég stolt slaginn fyrir ykkar hönd, klæði mig í stríðsgallann og tek baráttuna með stæl við valdamenn-og pólitíkusa landsins.

Það má vel deila um það hvort ég hafi allt til brunns að bera til að vera forseti íslands og ég geri mér fulla grein fyrir því að það verði jafn umdeilt mál og icesave, en hins vegar er ég ekki í nokkrum vafa um það að ég geti markaðssett Ísland betur en nokkur annar forseti hefur gert. Ég ætla ekki að vera með einhverja yfirborðsfulla ræðu um það hvað ég hef fram á að bjóða en í stuttu máli þá:

Ég gef kost á mèr til að opna ný tækifæri hérlendis og erlendis fyrir unga fólkið okkar í landinu.

Ég gef kost á mér útaf því ég er baráttukona, ég er frumkvöðull og ég hef óstöðvandi eldmóð.

Ég gef kost á mér til að hugsa betur um það sem ég kalla þjóðhöfðingjana okkar þ.e. gamla fólkið sem þarf meira öryggi.

Ég gef kost á mér fyrir jaðarhópa Íslands sem taka ekki þátt í kjaftæði.

Ég gef kost á mér til taka forsetaembættið upp á annað level af glæsileika.

Ég gef kost á mér fyrir þá sem þrá breytingar frá gömlum gildum.

Ég gef kost á mér til að þjóna þjóðinni eftir bestu getu, hlusta á fólkið og vekja athygli á því sem betur má fara.

Og að lokum þá gef ég að sjálfsögðu kost á mér til að krydda kosningabaráttuna…!

Mig langar að vekja athygli á því að þetta er hugsanlega í síðasta skipti sem að almenningur getur tekið virkan þátt í forsetaframboði, því samkvæmt nýjum stjórnarskrártillögum sem bíða samþykktar um gífurlegan aukinn fjölda undirskrifta í næstu kosningum geta einungis Katrín, pólitíkusar og valdafólk boðið sig fram, eða fólk sem hefur gífurlegt forskot í kynningu.

Ég þakka kærlega mínum stuðningsmönnum sem standa með mér og hvetja mig, ég met það mikils hvort sem ég kemst áfram eða ekki því tíminn er mjög knappur!

Til að þetta markmið mitt geti orðið að veruleika þá þarf ég að kalla saman liðsmenn mína og biðja ykkur um að taka virkan þátt í að gefa mér rafræn meðmæli, pússa skotskóna, hafa hátt og taka þátt í ævintýrinu með mér af krafti með jákvæðni að leiðarljósi.

Linkur á meðmæli: https://island.is/umsoknir/maela-med-frambodi/…

Metnaðarfullir sjálfboðaliðar á öllum landshornum og stuðningsmenn er velkomið að hafa samband á: asdisran@gmail.com

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?