Katrín mun ekki neita að skrifa undir eigið frumvarp um gjafakvótakerfi né mun hún vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu – ,,Landráðamál!“
Á meðan ég tók þátt í pallborðsumræðum í beinni útsendingu á móti Katrínu Jakobsdóttur og Höllu Tómasdóttur hjá Vísi í gær hófust á Alþingi Íslendinga umræður um frumvarp Svandísar Svavarsdóttur Vinstri – Grænum þá matvælaráðherra sem skilað var inn til þingsins þann 27. Mars síðastliðinn.
Þann dag var Katrín Jakobsdóttir starfandi matvælaráðherra í fjarvist Svandísar sem þá var í veikindaleyfi.
Verði þetta frumvarp Katrínar Jakobsdótturr og Svandís Svavarsdóttir um lagareldi samþykkt, þá höfum við Íslendingar gefið einkaleyfishöfum í fiskeldi í hafi, ótímabundin aðgang og yfirráð yfir okkar fallegu íslensku fjörðum á Vesturlandi og Austurlandi. Þetta er smjörþefurinn af því sem íslensk sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hyggst fyrir.
Það skal enginn velkjast í vafa um að þetta er nýtt gjafakvótakerfi sem deilt verður út með leyfum fjarða á milli sem bæði má selja og leigja áfram meðan birgðir endast.
En birgðirnar munu ekki endast lengi, því litla sem enga ábyrgð eða skyldur skulu fjarðargafakvótaeigendurnir nýju bera gagnvart náttúru og lífríki Íslands. Afleiðingar ófyrirsjáanlegar og óafturkræfar munum við Íslendingar hinsvegar bera.
Auðsýnt er að fyrrverandi forsætisráðherra forðaði sér úr stjórnmálunum áður en frumvarp hennar og Svandísar fór til umræðu í þinginu. Þetta gjafakvótafrumvarp ætlar hún að reyna að þvo hendur sínar af sér með forsetaframboði sínu.
Nú illu heilli er að raungerast fyrir augum okkar um hvað málskotsréttur forseta Íslands fjallar og það mun því skipta máli hver situr í embætti forseta Íslands þegar frumvarp þetta mun fara í atkvæðagreiðslu í þinginu. Og verði þá í embætti forseta Íslands Katrín Jakobsdóttir þarf ekki að spyrja að leikslokum. Hver trúir því að hún í embætti forseta Íslands muni hafna frumvarpi því sem var samið af hennar flokksfólki í hennar ríkisstjórn. Hugtakið vanhæfi snýr öðrum þræði að yfirbragði kerfisins. Hafið á að vera yfir allan vafa hvort forseti Íslands sé hæfur þegar kemur að undirritun laga frá Alþingi
Ég vil biðja fjölmiðlafólk þvert á ritsjórnir að sinna upplýsingaskyldu sinni og flytja almenningi engar fréttir aðrar en þær sem varða þetta óhuggulega, ég leyfi mér að segja, landráðamál sem i uppsiglingu er á Alþingi Ísland. Þegar nú öðru sinni á að gefa frá okkur auðlindir okkar.