Vinstri græn mælast með 4,4% fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og hefur fylgið aldrei mælst minna
Samfylkingin mælist með mest fylgi, 29,7%. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur stuðnings 18% kjósenda, 12,8% segjast myndu kjósa Miðflokkinn, aðeins um 5% munur er á fylgi flokkanna. 8,2% myndu kjósa Pírata. Fylgi Viðreisnar mælist 7,5% en fylgi Sósíalistaflokksins 3,4%. Stuðningur við ríkisstjórnina dregst saman milli mánaða og mælist 30%.
Fylgi við Framsóknarflokkinn mælist 8,8%, og Flokkur fólksins eykur fylgi sitt og mælist með 7,2%.
Umræða