• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 17. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Drög að stefnu í neytendamálum í samráðsgátt: Níu skilgreindar aðgerðir

Drög að stefnu í neytendamálum í samráðsgátt: Níu skilgreindar aðgerðir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. maí 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Menningar- og viðskiptaráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda, drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030.

Ráðgert er að stefnan verði lögð fram á Alþingi í maí, að loknu samráði.

Samkvæmt drögunum er framtíðarsýnin sú að á Íslandi verði traust og nútímaleg löggjöf á sviði neytendamála, sem stenst samanburð við nágrannalönd Íslands og stuðli að virkri neytendavitund og trausti neytenda m.a. hvað varðar reglufylgni og markaðseftirlit. Jafnframt að hér sé fagleg og skilvirk stofnanaumgjörð neytendamála, sem starfi með hagsmuni neytenda að leiðarljósi. Til að tryggja þessa framtíðarsýn er í drögunum sett fram aðgerðaáætlun sem unnið verði eftir til ársins 2030. Um er að ræða níu skilgreindar aðgerðir sem ná yfir uppfærslu og nútímavæðingu löggjafar á sviði neytendamála, aukna áherslu á netviðskipti og stafvæðingu, aukna neytendavernd á sviði fjármálaþjónustu og áherslu á fjármálalæsi, sérstakar þarfir viðkvæmra hópa neytenda, aukna neytendavernd við fasteignakaup, græna umbreytingu á sviði neytendamála, styrkingu stofnanaumgjarðar neytendamála, notkun íslensku við markaðssetningu og áherslu á rannsóknir, upplýsingagjöf og fræðslu til að efla neytendavitund.

„Mikil vinna hefur átt sér stað innan menningar- og viðskiptaráðuneytisins á undanförnum til þess að undirbyggja raunverulegar aðgerðir í þágu neytenda. Aðgerðir sem við viljum koma í verk sem fyrst og til framtíðar. Ég er sannfærð um að þær aðgerðir sem ný neytendastefna telur fram muni bæta samfélagið okkar og neytendavernd í þágu okkar allra. Sterk neytendakennd hefur sjaldnast verið mikilvægari – burt séð frá því hvoru megin við borði er staðið. Skýr löggjöf og regluverk er þar lykill,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 120 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sviptir góðum tekjumöguleikum

    Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    121 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • Næsta lægð er væntanleg

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Sam­eign þjóðarinnar – eða stærsta til­færsla auð­linda í sögu Ís­lands?

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?