Handtekinn í þágu rannsóknar lögreglu á innbroti og þjófnaði á fjármunum úr verðmætaflutningabifreið
Karlmaður um fertugt var í gær í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. maí að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn var handtekinn í fyrradag í þágu rannsóknar lögreglu á innbroti og þjófnaði á fjármunum úr verðmætaflutningabifreið í Hamraborg í Kópavogi fyrir rúmum fimm vikum.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.
Umræða