,,En fáum ferskt andlit í Forsetaembættið en ekki fyrrverandi stjórnmálamann eða ráðherra með vafasama siðferðilega hegðun“
Höfundur: Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar um Katrínu Jakobsdóttur.
Ég missti móður mína úr krabbameini 19. September síðastliðinn og var krabbameinið í meltingarfærunum og það var of seint að grípa inn í og mamma dó á nokkrum vikum 60 ára gömul.
Ef ég væri í framboði þá myndi ég aldrei nota móðir mína til að fá samúðaratkvæði.
Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsetisráðherra gerir það hinsvegar í nýju viðtali við Heimildina.
Þar segir hún frá föður sínum sem dó 57 ára úr sama krabbameini og móðir mín.
Hefur Katrín Jakobsdóttir einhverntímann sagt þessa sögu áður?
Hún segir einnig frá sorginni þegar amma hennar dó og frá bróðir pabba síns sem dó úr krabbameini líka.
Mynduð þið einhverntímann gera svona lagað? Er þetta siðferðilega rétt af forsetaframbjóðanda að gera? Af forseta Íslands að gera?
Auðvitað er þetta sorglegt, ég veit það af eigin raun og Katrín Jakobsdóttir hefur alla mína samúð. En svona leikur til að fá atkvæði er bara ekki rétt og ekki sæmandi nýjum forseta sem stökk úr ráðherrastóli til þess að verða í stærsta embætti á Íslandi vegna eigin metorðagirndar.
Það sjá allir hvað Katrín breytist í framboðinu með sitt gervibros og tugi milljóna ef ekki meira til að vekja athygli á sér. Til að kaupa auglýsingar, skoðanakannanir, ferðast í lúxus og gera hvað sem er til að fá atkvæði.
Myndir þú kjósandi góður nota látna einstaklinga úr fjölskyldu þinni til að fá atkvæði? Til að vekja athygli á þér?
Ef ekki þá getur þú ekki kosið þannig manneskju. Þá getur þú ekki kosið Katrínu Jakobsdóttur.
Ég hef elskað og dáð Katrínu þar sem ég var alinn upp af vinstri grænu fólki og kaus alltaf vinstri græna og mér líkaði mjög vel við Katrínu sem stjórnmálamann.
En Katrín hefur tapað sjálfri sér. Hún er ekki sama Katrín og hún var fyrir 7 árum. Forsetaembættið steig henni til höfuðs og nú hefur metorðagirndin fest sig í huga hennar og hjarta.
Ég mæli með að þið horfið á viðtalið mitt við Jón Gnarr á YouTube og sjáið virkilega hvernig maður hann er. Hvað hann hefur að færa Íslensku þjóðinni.
Ég hef þegar skrifað grein um það svo ég fer ekki út í það hér.
En fáum ferskt andlit í Forsetaembættið en ekki fyrrverandi stjórnmálamann eða ráðherra með vafasama siðferðilega hegðun.
Þetta er ein mikilvægasta ákvörðun fyrir komandi framtíð Íslands. Kjósið einhvern sem er alltaf hann sjálfur. Ekki kjósa manneskju með grímu sem breytist þegar hentar til að fá sínu framgengt og atkvæði. Ekki kjósa alþingismann eða ráðherra í Forsetaembættið.
Kjósið Jón Gnarr sem hefur allt til að bera til að vera forseti og mun vinna fyrir þjóðina en ekki sjálfan sig. Kjósið einhvern með sannan kærleika til lands og þjóðar.
Höfundur er podcast stjórnandi og andlegur leiðbeinandi
Jón Gnarr Forsetaframbjóðandi í andlegu málin með Gísla Hvanndal