• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkislögreglustjóri: Óvissustig Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga

Myndin tengist ekki fréttinni beint

Fyrirvari á eldgosi mjög stuttur – Gasmælar á starfssvæði Bláa Lónsins

Aðgengi að Grindavík, Bláa Lóninu o.fl. - Fréttatilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. maí 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Kvikusöfnun undir Svartsengi er áfram stöðug.  Um 16 milljónir rúmmetra af kviku hafa bæst við kvikuhólfið frá 16. mars sl.  Auknar líkur eru taldar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi næstu daga.  Líklegast er að gjósi á Sundhnúkagígaröðinni. Fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur.

Á starfssvæði Bláa Lónsins er nú þéttriðið net gasmæla

Hættumat Veðurstofu Íslands var uppfært 10. maí sl. og gildir til 17. maí nk. að öllu óbreyttu.

Bláa Lónið hefur hafið starfsemi að nýju að höfðu samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum.  Á starfssvæði Bláa Lónsins er nú þéttriðið net gasmæla.  Þá er veðurstöð staðsett á einni bygginu Bláa Lónsins.

Eftirlit og viðbagð við hugsanlegri gasmengun er nú með allt öðrum hætti en áður hefur verið á starfssvæði Bláa Lónsins.   Öryggisfulltrúi á vegum fyrirtækisins situr daglega morgunfundi aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar.

Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að vísa á brott eða fjarlægja fólk af hættusvæði

Ekki er heimilt að ganga inn á gossvæðið frá bílastæðum Bláa Lónsins eða frá Grindavíkurvegi.  Svæði 3 á meðfylgjandi hættumatskorti.   Bannið tekur ekki til viðbragðsaðila, hóps vísindamanna og einstaklinga á vegum Blaðamannafélags Íslands með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum .  Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að vísa á brott eða fjarlægja fólk af hættusvæði.

Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni:  https://loftgaedi.is/   Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni:  https://island.is/eldgos-heilsa  og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni:  https://vinnueftirlitid.is/

Frekari upplýsingar:

  • Íbúar, starfsmenn og gestir dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi.
  • Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik.   Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri.  Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum.
  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirvara.   Hætta er talin mjög mikil á jarðfalli ofan í sprungur, sprunguhreyfingum, hraunflæði og gasmengun. 
  • Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega.  Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum Grindavíkurbæjar, fyrirtækja, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.  Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.   
  • Ekki þykir tímabært af öryggisástæðum að hleypa ferðamönnum að gosstöðvunum.  Hættur í og við gíginn eru:  Jarðfall ofan í sprungu, sprunguhreyfingar, gosopnum án fyrirvara, hraunflæði, gjóska, gasmengun og jarðskjálftar.

Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.

Lokunarpóstar eru við  Bláalónsveg, Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg.   Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Nesveg, Suðurstrandarveg og Grindavíkurveg.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.  Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt.  Lögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.

Framangreint fyrirkomulag gildir til  21. maí 2024 að öllu óbreyttu.

Umræða
Share16Tweet10
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?