Hugleiðingar veðurfræðings
Vestur af Skotlandi er lægð á leið norður og skilin frá henni eru að nálgast Austfiðri með norðlægri átt og rigningu. Er líður á daginn verður norðanátt á öllu landinu, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi. Rigning norðaustan- og austantil en annars bjart með köflum og stöku skúrir. Hiti frá 5 stigum í þokulofti við norður- og austurströndina upp í 16 stig á Suðurlandi þar sem sólar nýtur við.
Í nótt nálgast lægðin landið enn frekar og þá hvessir og á morgun verður norðvestan hvassviðri á norðaustan- og austanverðu landinu og víða slær í storm á Austfjörðum og sunnan undir Vatnajökli. Það er því ráðlegt að fara að öllu með gát á þessu svæði og líklegt að ekki verði ferðafært með aftan í vagna fyrr en á laugardaginn. Spá gerð: 27.06.2024 06:46. Gildir til: 28.06.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðlæg átt, 5-13 m/s, hvassast austantil. Yfirleitt bjart, en sums staðar skúrir, en fer að rigna norðan- og austanlands í kvöld.
Hvessir í nótt, norðvestan 15-23 í fyrramálið, en heldur hægari vestantil. Rigning á norðaustan- og austanverðu landinu, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla.
Hiti 5 til 16 stig, mildast á Suðurlandi.
Spá gerð: 27.06.2024 05:11. Gildir til: 28.06.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðvestan 5-13 m/s og þurrt og bjart veður um landið vestanvert, en rigning eða súld austantil fram eftir degi. Hiti frá 5 stigum norðaustanlands að 20 stigum syðst á landinu.
Á sunnudag:
Suðlæg átt 3-8 m/s, og víða bjartviðri en 8-13 m/s og rigning vestantil síðdegis. Hiti 10 til 24 stig, hlýjast um landið norðaustanvert.
Á mánudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og bjart með köflum, en rigning austast í fyrstu. Hiti 8 til 18 stig, svalast á annesjum fyrir norðan, en hlýjast á Suðausturlandi.
Á þriðjudag:
Fremur hæg austlæg átt og víða rigning sunnan- og austantil, en ananrs yfirleitt þurrt. Hiti 9 til 16 stig.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir norðaustlæga átt með skúrum um mest allt land. Heldur svalara.
Spá gerð: 27.06.2024 08:05. Gildir til: 04.07.2024 12:00.