• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 26. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Er prófessor Torfi alræðissinni eða bara nytsamur kjáni …

Er prófessor Torfi alræðissinni eða bara nytsamur kjáni …

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. júlí 2024
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0
Hallur Hallsson, skrifar

Torfi Túliníus er professor í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands, afar ljúfur maður og viðkunnanlegur. Við gengum um Hornstrandir fyrir um aldarfjórðung og áttum mörg ánægjuleg samtöl. Torfi mætti í fréttasett RÚV með æskuvini mínum Boga Ágústsyni eftir fyrri umferð frönsku kosninganna. Þeir höfðu miklar áhyggjur af sigri frönsku þjóðfylkingarinnar sem væri “…ógn við lýðræðið.” Hætta er á að franska þjóðin fái Marine Le Pen yfir sig. “Þetta er mjög alvarlegt,”. Vonir Torfa um minna fylgi frá Evrópukosningunum hefðu ekki ræst. Nú veltur allt á að “…flokkar sem standa vörð um lýðræðisleg gildi nái að vinna saman.” !!! Þetta er ekki hægt að skálda.

ÆTTJARÐARVINIR EVRÓPU; PATRIOTS FOR EUROPE

Bogi var jafn miður sín því Macron forseti hefði gert “…mikil mistök,” að efna til kosninga. Torfi svaraði að Macron “…hefði skotið sig í fótinn … þetta er ekkert til að hlæja að.” Það vantaði bara að þeir félagar tárfelldu í beinni. RÚV tönnlast á því að Þjóðfylkingin sé “hægri öfgaflokkur.” Sumsé að þriðjungur frönsku þjóðarinnar sé fífl og öfgafólk. Torfi þykist hlutlaus fræðimaður en er í raun bara pólitískur aðgerðasinni. Þessi framganga er RÚV til háborinnar skammar en gerist á hverjum degi.

Babelturninn í Strassborg er nútíma tákn um uppreisn gegn Guði. Berlaymont er í uppnámi. Þjóðir Evrópu eru að rísa upp svo sem Evrópukosningarnar sýndu, Frakklandi í ljósum logum, prófessor Torfi á gati. Hægri flokkar Ungverja, Tékka og Austurríkismanna hafa tilkynnt bandalag undir kjörorðum Patriots for Europe; Ættjarðavinir Evrópu. Uppreisnin breiðist út. Við Íslendingar eigum ekki öflugan leiðtoga patriot; ættjarðavin. Af hverju halda menn að svo sé? Alþingi er undir Evrópufána, fullveldi glatað.

NÚTÍMA ALRÆÐI & ÚTRÝMING ÞJÓÐAR

Þeir félagar Torfi & Bogi eru hliðverðir um glóbalískan rétttrúnað og nútíma alræði; afnám vestrænnar siðmenningar sem ég hef skrifað um frá janúar 2017. Í Háskóla Íslands fer fram innræting “menntafólks” inn á við. RÚV sér um innrætingu út á við, heilaþvott þjóðar. Pólitísk múslimavæðing Íslands þýðir útrýmingu íslenskrar þjóðar, menningar, sögu og tungu. Ísland að verða þriðja heims land.

Kannast einhver við að þjóðin hafi verið spurð? Hvernig má það vera að íslenskur miðaldafræðingur stefni íslensku lýðveldi og þjóð í tvísýnu? Hið sama á við um framtíð franskrar þjóðar.  Torfi er útskrifaður frá Sorbonne, Sæmundur fróði frá Svartaskóla. Ólíkt aðhafast menn.

ÞEGAR VATIKANIÐ TÓK NOREG OG SVO ÍSLAND

Áttar hann sig á þýðingu bandalags Hákonar gamla og Georgíusar IX páfa sem leiddi til þess að flugumenn voru sendir með tilskipun um að drepa Snorra Sturluson í Reykholti árið 1241, eftir að Skúli jarl var veginn þegar hann flæmdist út úr logandi klaustrinu í Niðarósi.

Vatikanið hafði náð undir sig Noreg og tók svo Ísland. Auðvitað þekkir Torfi orrustuna um Tours suður af París þegar múslimar voru sigraðir 732AD og umsátrið um Vínarborg 1529AD þar sem Ottómanar voru stöðvaðir. Vestrænni siðmenningu var bjargað. Nú stendur yfir enn ein innrásin og það innan frá. Er Torfi guðlaus alræðissinni eða bara nytsamur kjáni …

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði?“

    Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Loðnu að finna á stóru svæði

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?