Í síðasta mánuði höfðu tollverðir á Keflavíkurflugvelli afskipti af konu sem var að koma til landsins frá Spáni. Hún var ein á ferð með 12 ára syni sínum.
Reyndist hún hafa 160 pakkningar af eiturlyfjum í meltingarvegi en kókaín var þar á meðal. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum hefur málið til rannsóknar en drengurinn er í öruggum höndum barnaverndaryfirvalda á Suðurnesjum. Drengurinn er ekki talinn tengjast innflutningi fíkniefnanna en ekki er ólíklegt að hann hafi verið með í för til þess að villa um fyrir tollgæslu og lögreglu. Rannsókn málsins stendur yfir og miðar vel.
Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu aðrar en þær að ýmislegt er reynt til að koma ólöglegum fíkniefnum inn í landið.
Umræða