• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sonja Lind nýr aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttur sem aðstoðarmann sinn

Sonja Lind nýr aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. ágúst 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttur sem aðstoðarmann sinn. Hún hefur störf í vikunni.

Sonja er með meistara- og BA-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangur við útskrift úr BA-námi. Áður hafði Sonja lokið námi í grafískri miðlun frá Iðnskólanum í Reykjavík.

Síðustu fjögur ár hefur Sonja starfað sem starfsmaður og verkefnastjóri þingflokks Framsóknar á Alþingi og hefur þar komið að gerð fjölda þingmannamála tengdum heilbrigðis- og lýðheilsumálum ásamt því að aðstoða þingmenn við vinnslu mála fyrir nefndum Alþingis. Áður starfaði Sonja sem verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.

Sonja hefur gegnt trúnaðar- og félagsstörfum í gegnum tíðina. Hún var sambandsstjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar 2021-2023 og ritari stjórnar Félags starfsmanna Alþingis frá árinu 2022. Þá hefur Sonja setið í ýmsum nefndum og ráðum fyrir Borgarbyggð síðustu ár, meðal annars Velferðarnefnd og Barnaverndarnefnd. Auk þess sem hún hefur verið varamaður í stjórn Póstsins frá árinu 2020.

Sonja er fædd á Ísafirði árið 1981, ólst upp í Borgarnesi og er búsett þar í dag. Maki Sonju er Pavle Estrajher umhverfis- og náttúrufræðingur og eiga þau þrjú börn.

Sonja tekur við starfi Millu Óskar Magnúsdóttur sem þegar hefur látið af störfum. Sigurjón Jónsson er einnig aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Dómgreindarleysi að ætla að stökkva úr Stjórnarráðinu á Bessastaði“

    ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    71 deilingar
    Share 28 Tweet 18
  • ,,Hræðsluáróðri hefur verið beitt eins og svipu“

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    133 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Sam­eign þjóðarinnar – eða stærsta til­færsla auð­linda í sögu Ís­lands?

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?