Lögreglan var með sýnilega löggæslu við hátíðarsvæðið og var mikill mannfjöldi samankominn.
Ein líkamsárás var tilkynnt á einum af skemmistöðum bæjarins. Enginn handtekinn vegna árásarinnar en lögregla telur sig hafa upplýsingar um geranda.
Tveir aðilar gistu fangageymslur vegna ölvunar á almannafæri en annar þeirra verður jafnframt kærður fyrir ofbeldi gagnvart lögreglumönnum en viðkomandi kýldi tvo lögreglumenn í andlitið.
Talsverð ölvun var á ungmennum. Lögreglan hafði afskipti af þeim og hringdi í foreldra í samstarfi við barnavernd.
Heilt yfir gekk Ljósanótt vel.
Umræða