• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 3. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vegna E. coli í matvælum – Matvælastofnun

Vegna E. coli í matvælum – Matvælastofnun

Matarsýkingar vegna E. coli

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. október 2024
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Matarsýkingar vegna E. coli

Í ljósi frétta síðustu daga telur Matvælastofnun rétt að árétta nokkur atriði er varða meðhöndlun matvæla, sérstaklega með E. coli í huga.

Hvað er E. coli?

Til eru margar tegundir kólíbaktería. Þær finnast í þörmum manna og dýra. Sumar tegundir geta myndað eiturefni og þar með valdið alvarlegum sjúkdómum hjá fólki þá sérstaklega börnum, öldruðum og öðrum viðkvæmum einstaklingum. Þessar eiturmyndandi E. coli bakteríur nefnast STEC (Shiga Toxin-producing Escherichia Coli) og geta í sumum tilvikum valdið alvarlegum veikindum.

Matarsýkingar vegna E. coli

Matvöruverslun

Bakterían getur komist í kjöt við slátrun, ef innihald þarma dýrsins berst á kjötið. Fyrirbyggjandi aðgerðir sem minnka líkur á að kjöt mengist eru því mikilvægar s.s. hreinir gripir og hreinlæti við slátrun. Einnig getur bakterían komist í grænmeti, ávexti og annað sem er ræktað í náinni snertingu við mold, lífrænan úrgang eða vatn sem er saurmengað.

Fólk getur smitast af E. coli, með menguðum matvælum (t.d.hakki og grænmeti) eða vatni, með beinni snertingu við dýr eða umhverfi menguðu af saur þeirra. Bakterían kemst þannig um munn og niður í meltingarveg.

Það er viðtekin venja að nauta-, lamba- og hrossasteikur séu bornar fram án þess að vera gegnumsteiktar. Á hráum kjötstykkjum eru bakteríur á ysta lagi kjötsins en ekki inni í vöðvanum. Þær drepast því þegar kjötið er steikt eða grillað við háan hita. Um hamborgara og aðra rétti úr hökkuðu kjöti gildir allt annað. Þegar kjöt er hakkað dreifast örverur um kjötið. Létt steiking drepur því ekki bakteríur sem eru til staðar í kjötinu. Til þess að drepa E. coli og aðrar sjúkdómsvaldandi örverur verður að steikja hamborgarana og aðra rétti úr hakki í gegn eða þannig að kjarnahitastig sé a.m.k. 75°C.

Hvað geta neytendur gert til að forðast smit?

  • Fullsteikja ávalt hamborgara og annað hakkað kjöt
  • Gæta að hreinlæti í eldhúsinu þegar hrátt og hakkað kjöt er meðhöndlað
  • Forðast krossmengun með því að halda kjöti aðskildu frá öðrum matvælum, sérstaklega frá þeim sem ekki á að elda s.s. salati
  • Skola allt grænmeti upp úr hreinu vatni
  • Þvo skurðarbretti, áhöld, hnífa og nánasta umhverfi eftir meðhöndlun á hráu kjöti, til að koma í veg fyrir að bakteríur berist yfir í matvæli sem ekki á að hita
  • Ekki þurrka upp blóðvökva með borðtusku sem er notuð á aðra fleti, nota frekar pappírsþurrkur
  • Góður handþvottur með sápu og vatni eftir salernisferðir, áður en matvæli eru handleikin og eftir að hafa meðhöndlað hrátt kjöt er mikilvæg regla til að koma í veg fyrir smit
  • Koma í veg fyrir að blóðvökvi leki af kjöti í ísskápnum
  • Forðast neyslu á ógerilsneyddum mjólkurvörum

Ítarefni

Upplýsingar um E. coli – STEC

Meðhöndlun hamborgara

Heilræði við meðhöndlun matvæla

Meðhöndlun grænmetis

Smitvarnir í tengslum við dýr

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Endurmenntun bílstjóra – sektir og kyrrsetning

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Úlfar: Kerfisbreytingar drifnar áfram af vók hugmyndafræði

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Leiguverð á kvóta 420.000 krónur tonnið í júlí 2022 – Kvótagreifi sem leigir frá sér kvóta borgar ekki krónu til samfélagsins

    395 deilingar
    Share 359 Tweet 15
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?