• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 28. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Svíþjóð ætlar að „hræða Rússana” með nýju eldflaugakerfi

Svíþjóð ætlar að „hræða Rússana” með nýju eldflaugakerfi

Fjallað er um málið á fréttamiðlinum Þjóðólfur.is

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. október 2024
in Erlent, Fréttir
A A
0

Sænska ríkisstjórnin sér ekkert nema þriðju heimsstyrjöldina gegn Rússlandi í spilunum

Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, greindi frá því nýlega að Svíþjóð myndi koma sér upp meðaldrægum eldflaugum „til að hræða Rússa.” (Samsett mynd).

Svíþjóð ásamt fimm öðrum evrópskum Nató-löndum mun þróa nýtt kerfi meðaldrægra eldflauga sem ná allt að 2000 kílómetra og geta gert árásir á Rússland. Sænska ríkisstjórnin sér ekkert nema þriðju heimsstyrjöldina gegn Rússlandi í spilunum og talar daglega um komandi árásir Rússlands á Svíþjóð.

Það er sú framtíðarsýn sem leiðtogar Norðurlandaráðs hafa með sér á fundinn í Reykjavík á morgun og vonast til að einræðisherra Úkraínu, Zelenský, muni blessa. Fjallað er um málið á fréttamiðlinum Þjóðólfur.is

Ísland er ekki lengur land friðar heldur stríðs. Til eru peningar til að gefa Zelenský til vopnakaupa til að drepa enn fleiri á vígvellinum en matarlausir á Íslandi eru sendir til Fjölskylduhjálparinnar til að fá gefins mat. Vonandi geta sætu bræðurnir Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra Íslands og Volodymyr Zelensky einræðisherra Úkraínu, skálað fyrir nýjum milljörðum frá íslenskum skattgreiðendum svo hægt verði að slátra enn fleiri í Úkraínu.

Varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Pål Jonsson frá móderötum, segir að nauðsynlegt sé fyrir ESB-ríkin að auka hernaðargetuna til hræða Rússa frá fyrirhuguðum árásum á Vesturlönd samkvæmt Jonson. Hann sagði í viðtali við sænska ríkisútvarpið P1:

„Í framkvæmd þýðir nýja eldflaugakerfið betri fælingarmöguleika. Það mun einnig neyða andstæðinginn til að binda upp herafla í varnarskyni vegna hættu á árásum.”

Hægt að skjóta eldflaugunum á skotmörk langt fyrir utan landamæri Svíþjóðar

Nákvæmlega um hvaða vopnakerfi er að ræða er enn ekki ljóst, en að sögn Hans Liwång, prófessors við norska varnarháskólann, er líklegt að um sé að ræða eldflaugar sem draga á milli 1000 til 2000 kílómetra og hægt verður að nota til árása á skotmörk langt fyrir utan landamæri Svíþjóðar.

„Hægt er að ímynda sér að þetta séu eldflaugar sem hægt er að skjóta frá sænskri grundu yfir Eystrasaltið, til dæmis í árás á undirbúning flutninga og hafna sem nota á til að hefja innrás gegn Svíþjóð.”

„Aðalmálið er er vegalengdin sem er að minnsta kosti 10 sinnum lengri en en þau eldskeyti ná sem Svíþjóð hefur í dag. Þetta er því vopn sem hægt er að skjóta ekki bara á þá sem ráðast á Svíþjóð heldur líka á svæði sem er langt fyrir aftan þá.”

Ekki lengur vopn takmörkuð við varnir landsins

Teikning af nýju árásarflauginni: MBDA hergagnaframleiðsla í Evrópu sem meðal annars vinnur með sænska Saab.

Unnið verður að framleiðslu hinna nýju drápstækja í samvinnu við stóru löndin í Evrópu: Frakkland, Bretland, Þýskaland, Pólland og Ítalíu. Ástæðan fyrir því að svo mörg lönd vinna að sameinaðri framleiðslu er að eldflaugakerfið á að verða tilbúið eins fljótt og auðið er – helst fyrir ár 2030. Liwång segir:

„Það er líka pólitísk vídd í þessu að geta sýnt að stóru löndin í Evrópu geti sjálf þróað fram þessi vopn án aðstoðar frá Bandaríkjunum. Ég tel ólíklegt að kerfið verði tilbúið til notkunar fyrr en 2030.”

Prófessorinn segir einnig, að Svíar hafi ætíð einbeitt sér að hernaðarvörnum – það er að Svíar séu með vopn til að verjast gegn aðila sem ræðst á sænskt landsvæði en breyting hafi orðið á þeirri skoðun í seinni tíð.

Umræða
Share4Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk skilið eftir án tekna mánuðum saman hjá Virk og Tryggingastofnun

    Fólk skilið eftir án tekna mánuðum saman hjá Virk og Tryggingastofnun

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Umsækjendur um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Embætti sýslumanns laust til umsóknar

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Páskaegg eru ódýrust í Prís – Mestar hækkanir á Bónus eggjum milli ára

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Daði Már Kristófersson fær uppsagnabréf án áminningar

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?