• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Flokkur fólksins með þingsályktunar tillögu um að hætta við launahækkun ráðamanna

Takk fyrir peninginn Inga Sæland

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. október 2024
in Aðsent & greinar, Innlent
A A
0

Mig langar að þakka þér Inga Sæland fyrir þitt framlag, þinn mikla kraft og sterku réttlætiskennd að ná fram Jólabónus fyrir öryrkja og aldraða enn eitt árið. Og mér skilst að við fáum hann ekki seinna en 1. Desember ef heimildir mínar eru réttar og verður hann í kringum 70 þúsund. 

Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar

Mamma mín nefnilega ákvað ekki að fá versta krabbamein sem hægt er að fá.

Pabbi minn ákvað ekki að detta 6 metra niður af húsþaki og næstum deyja. Það er í raun kraftaverk að hann sé á lífi.

Og ég ákvað ekki að fá flogaveiki.

Þó mamma sé farin af þessari jörð þá munu tveir jólabónusar hjálpa minni fjölskyldu að eiga gleðileg jól.

Bjarni Ben segir að öryrkjar eigi að hafa einhvern hvata til að fara á vinnumarkað. Mér finnst ennþá ótrúlegt að þessi peninga maður hafi virkilega látið þetta út úr sér í fjölmiðlum.

Það hefur engin stjórnmálamaður né stjórnmálakona gert eins mikið og þú Inga fyrir öryrkja og aldraða og ég held að ég fái leyfi frá öllum til að þakka þér innilega fyrir.

Í gegnum tíðina höfum við Íslendingar nánast einungis fengið bara brotin loforð frá fólki sem vildi í raun bara komast á þing og hafa það gott fyrir sig og sína. Afsakið, en þannig sé ég þetta og finnst það augljóst. Að brjóta loforð einu sinni getur verið mistök en að gera það oft er val.

Ég vona að Íslendingar haldi ekki áfram að gera það sama eins og það gerir alltaf. Það kýs röngu flokkana og kvartar síðan í fjögur ár.

Ég vona að sem flestir Íslendingar noti rétt sinn og kjósi þegar kemur að því.

Og ég vona að það kjósi Flokk Fólksins og það góða einbeitta fólk í honum sem hugsar um ÞIG og ÞÍNA en ekki bara sjálft sig.

Kjósið Flokk Fólksins fyrir þá sem eru lamaðir, vantar útlimi á, eru með krabbamein, MS og aðra taugasjúkdóma. Kjósið Flokk Fólksins fyrir fólk með geðraskanir og kjósið líka fyrst og fremst Flokk Fólksins fyrir ykkur sjálf og framtíð Íslands. Kjósið hann fyrir börnin okkar jafnt sem aldraða.

Þetta er eini flokkurinn sem mun berjast fyrir ykkur. Inga Sæland hefur sýnt það og sannað oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.

Ég bið ykkur allavega öll að staldra aðeins við og hugsa ykkur um í kjörklefanum áður en þið kjósið þegar kemur að því.

Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin, Miðflokkurinn og allir þeir sem ég nefni ekki, valda bara vonbrigðum eins og alltaf. Þeir lofa og lofa og þetta er bara sami vítahringurinn í fjögur ár og allir kvarta út af sínu eigin vali á hvaða flokk það kaus.

Hvernig væri að brjóta vítahringinn? Hvernig væri að gefa Flokki Fólksins tækifæri til að gera raunverulegar og góðar breytingar fyrir land og þjóð á mörgum sviðum?

Við höfum engu að tapa heldur allt að vinna.

Hvernig væri að breyta til og sjá hvað gerist?

Allavega, Inga mín og samstarfsmenn og konur. Takk fyrir jólagjöfina og Gleðileg Jól þótt enn séu tveir mánuðir í þau. Þau verða allavega gleðileg hjá mér og mínum vegna ykkar. Vegna Flokk Fólksins. Þið fáið mitt atkvæði fyrir framtíð Íslands.   https://flokkurfolksins.is/

Höfundur: Gísli Hvanndal Jakobsson

Eilífðarstúdent

Umræða
Share62Tweet39
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella staðfest

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?