• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Eftirspurnin eftir rafbílum hrapar og bensínbíllinn aftur á toppnum

Eftirspurnin eftir rafbílum hrapar og bensínbíllinn aftur á toppnum

Græna byltingin hægir á sér – Hætt við hvert græna stórverkefnið á fætur öðru

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. nóvember 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Eftirspurnin eftir rafbílum hrapar og helstu bílaframleiðendur leggja áætlanir sínar um að skipta yfir í 100% rafbíla á hilluna. Vindorkan er á hnjánum og dæmd sem efnahagslega óhaldbær og rafgeymaframleiðandinn Northvolt er í öndunarvél. Núna stöðvar stórfyrirtækið LKAB fyrirætlanir sínar um framleiðslu græns stáls (Hybrit) og Vattenfall segir að hætt verði við enn eitt vindorkuverkefnið.

Fjallað er um málið á fréttamiðlinum Þjóðólfur.is og þar kemur fram að LKAB hafi tilkynnt í nóvember 2020 um stærstu breytinguna í sögu námufyrirtækisins. Fyrirtækið ætlaði að umbylta stálframleiðslunni með með grænu vetni. Hið nýja græna stál átti alfarið að koma í stað stáls sem framleitt er með hefðbundnum hætti. Árið 2022 var sagt frá metnaðarfullu markmiði fyrirtækisins, að í síðasta lagi árið 2050 væri grænu umbreytingunni lokið og að öll stálframleiðsla fyrirtækisins yrði í hinu nýja græna stáli.

En núna er komið annað hljóð í strokkinn að sögn Jan Moström, forstjóra LKAB. Fyrirtækið hefur gert nýjar áætlanir „sem eru í meira jafnvægi.“ Hann vísar til annarra jarðefnaauðlinda en fyrir fimm árum og takmarkana í innviðum. Þar með er græna stálið komið á hilluna – að minnsta kosti í bili.

Vattenfall

Græna byltingin hefur líka hægt á sér hjá Vattenfall. Fyrr á þessu ári var tilkynnt að Kriegers Flak vindorkuframkvæmdir yrðu stöðvaðar og núna er rætt um að fresta vindorkuverkefninu við Kattegatt Syd.

Ein af ástæðum þess að vindorkuverkefnið Kriegers Flak var stöðvað var kostnaður við að tengja vindorkuverið við rafkerfið í landi. Ríkisstjórn Svíþjóðar telur að Vattenfall eigi að standa straum af þeim kostnaði en ekki skattgreiðendur eins og Vattenfall vill.

Anna Borg, forstjóri Vattenfalls, segir við Aktuell hållbarhet varðandi stöðvun Kattegatt Syd:

„Það lítur allt út fyrir það. Við gerum það sem við getum til að draga úr kostnaði við verkefnið. Við erum í viðræðum við birgjana okkar og einnig hugsanlega rafmagnskaupendur.”

Bensínbíllinn aftur á toppnum

Aflögð kjarnorka hefur valdið miklum efnahagslegum usla í Þýskalandi. Þýsku græningjarnir hafa verið í fararbroddi grænu byltingarinnar og hefur greinilega legið ansi mikið á, þegar farið er að neyða rafbíla upp á fólk.

En ný gögn frá stærsta bílatryggingafélagi Þýskalands sýna, að þriðji hver rafbílaeigandi skipti aftur yfir í bensín- eða dísilbíl á þessu ári.

Hlutfall bensínbílaeigenda sem skiptu yfir í rafbíla árið 2024 er 3,6%. Aðeins 18% segjast ætla að íhuga rafbíl við næstu bílakaup.

Græna byltingin étur börnin sín ekki síður en sú rauða.

Ónotaðir rafbílar hrúgast upp í bílakirkjugarði

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    88 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    181 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?