Á áttunda tímanum í gærkvöld varð alvarlegt umferðarslys á Biskupstungnabraut, skammt frá Þrastarlundi. Árekstur varð milli tveggja bifreiða.
Alls voru sex aðilar í slysinu. Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslu til Reykjavíkur en aðrir fluttir með sjúkrabifreiðum á heilbrigðisstofnanir. Auk lögreglu, sjúkraliðs og Landhelgissgæslu komu Brunavarnir Árnessýslu einnig að verkefninu.
Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu.
Umræða