Athygliverða fréttaskýringu er að finna hjá fréttamiðlinum Mannlíf, þar sem hinn gamalreyndi blaðamaður Reynir Traustason, rýnir í stöðu stjórnmála á Vestfjörðum. Fáir blaðamenn hafa eins mikla þekkingu og reynslu og Reynir á málefnum í þeim landshluta eins og kunnugt er og á árum áður var hann fréttaritari á svæðinu:
Frétt Mannlífs
,,Sjálfstæðismenn á Vestfjörðum eru sumir hverjir í áfalli vegna þess að þingmanni þeirra. Teiti Birni Einarssyni, var hent út í ystu myrkur þegar kosið var um uppröðun á lista Sjálfstæðisflokksins. Talið er að örlög Teits megi rekja til þess að hulduher Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hafi beitt sér geg honum.
Teitur Björn er eitt af óskabörnum Vestfirðinga, sonur héraðshöfðingjans Einars Odds Kristjánssonar, sem naut mikilla vinsælda sem þingmaður. Teitur er alinn upp í föðurhúsum á Sólbakka í Önundarfirði. Mágur hans er Illugi Gunnarsson, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins.
Víst er að Sólbakkafjölskyldan er í miklum ham vegna meðferðarinnar á Teiti. En það er sárabót og huggun harmi gegn að náfrænka Teits Björns, María Rut Kristinsdóttir, skipar efsta sæti á lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi.
Fjölskyldan getur því hallað sér að henni og refsað Sjálfstæðisflokknum fyrir hrakfarirnar um leið …“ Segir Reynir Traustason og er fréttaskýring hans alveg örugglega rétt, því Vestfirðingar hafa alltaf beitt atkvæðum sínum af skynsemi, til öflugra einstaklinga á svæðinu. Til þess að treysta hag byggðarlagsins með því að eiga sinn þingmann og málsvara á Alþingi, og í þessu tilfelli geta sjálfstæðismenn á Vestfjörðum kosið Viðreisn.