Það var ljóst strax frá fyrstu tölum sem bárust úr Suðurkjördæmi um klukkan ellefu í gærkvöld að það stefndi í töluverðar breytingar á Alþingi. Þjóðin hefur hafnað gömlu flokkunum og ríkisstjórninni.
Stjórnarflokkarnir þrír tapa hafa skrifað nýjan kafla í sögubækurnar, Vinstri grænir detta út af þingi en nokkru áður hafði formaður flokkisin, Katrín Jakobsdóttir, látið sig hverfa úr flokknum.
Formaður elsta flokksins dettur líka út af á Alþingi, en Sigurður Ingi datt nánast út af þingi í kosningunum. Þá er þetta versta útreið sem Framsóknarflokkurinn hefur fengið í kosningum sem og Sjálfstæðisflokkurinn frá stofnun þeirra.
Vinstri græn tapaði öllum sínum sætum á Alþingi og Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn tapa sögulega mörgum þingmönnum en Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei fengið minna upp úr kjörkössunum. Þjóðin hefur með atkvæðum sínum slaufað gömlu flokkunum. VG og Píratar falla einnig af þingi og Sósíalistar. Miðflokkurinn kom vel út úr kosningunum en frekar ólíklegt að flokknum verði boðið að vera með í ríkisstjórn þar sem hann er á móti ESB.
Hvað sögðu sigurvegararnir á kosningakvöldi
„Niðurstöður kosninganna eru þær að fólkið vill breytingar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Kristrún Frostadóttir segir þau kosningaúrslit sem nú liggja fyrir vera stóran sigur fyrir Samfylkinguna og augljóst ákall eftir breytingum.
Inga Sæland segir línur Flokks fólksins liggja nær félagshyggjuflokkum, frekar en þeim til hægri. Hún segir að hún sé þó ekki farin að huga að stjórnarmyndunarviðræðum. „Ég er nú enn þá svífandi á þessu bleika skýi,“ segir hún eftir úrslit næturinnar. Hún bendir á að stjórnarandstöðuflokkarnir hafi bætt verulega við sig sem sé merki um ákall eftir breytingum. Af orðum Ingu má dæma sem svo að hún horfi til Samfylkingar og Viðreisnar. „Við, þessar stóru, sterku stelpur, við erum að standa okkur frábærlega. Það er bundin mikil von við okkur.