• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 21. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ný flugstöð og flughlað vígð á Akureyrarflugvelli

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra við vígslu nýrrar flugstöðvar og flughlaðs á Akureyrarflugvelli.

Ný flugstöð og flughlað vígð á Akureyrarflugvelli

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. desember 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ný flugstöð og nýtt flughlað voru vígð við hátíðlega athöfn og formlega tekin í notkun á Akureyrarflugvelli. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra flutti ávarp við athöfnina en hann tók fyrstu skóflustungu að viðbyggingu flugstöðvarinnar sumarið 2021. Fjölmenni var við vígsluna sem bar upp á 70 ára afmælisdag Akureyrarflugvallar, þ.á m. fulltrúar Akureyrarbæjar, Isavia og framkvæmdaaðila.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra: „Hin nýju og glæsilegu mannvirki á Akureyrarflugvelli, flughlað og stækkuð flugstöð, eru mikið framfaraspor fyrir flugsamgöngur á Norðurlandi. Þau styrkja mikilvægt hlutverk Akureyrarflugvallar fyrir svæðið í kring og landið allt, fyrir tengingar innanlands, sem gátt inn í landið og sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug. Öflugur flugvöllur á Akureyri færir Norðurlandi mikinn ábata og ávinning þegar í stað og styður við þá stefnu að dreifa ferðafólk um allt land. Mannvirkin munu standa sem skýrt merki um sýnilegan árangur síðustu ára.“

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla: „Það er ekki tilviljun að þessi dagur varð fyrir valinu til að taka þessa nýju viðbót í notkun. Fyrir sjö áratugum síðan upp á dag var Akureyrarflugvöllur vígður við hátíðlega athöfn og dagurinn því táknrænn í sögu vallarins.“ Sigrún upplýsti að ný flugstöð geti annað hálfri milljón farþega en farþegar um Akureyrarflugvöll eru um 200 þúsund árlega. Þar af eru millilandafarþegar um 16%.“

Byggt í þremur áföngum

Ný og endurbætt flugstöð var unnin í þremur áföngum. Í þeim fyrsta var nýrri viðbyggingu upp á 1.100 fermetra bætt við þar sem er aðstaða fyrir lögreglu, toll, fríhafnarverslun og veitingastað. Í öðrum áfanga verksins var núverandi komusvæði flugstöðvarinnar endurbyggt en þar er nýtt innritunarsvæði. Í þriðja áfanga var núverandi innritunarsvæði og skrifstofuhluti flugstöðvarbyggingarinnar endurbyggt.

Nýja flughlaðið er 33 þúsund fermetrar að stærð og með skilgreind tvö þotusvæði. Allt í allt er hægt að taka á móti 12 til 14 flugvélum á Akureyrarflugvelli í stað 4 til 5 véla.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Rannsókn á andláti

    260 deilingar
    Share 104 Tweet 65
  • Albanir handteknir á Raufarhöfn: Sérsveitin handtók meinta aðila í skipulögðum glæpasamtökum

    73 deilingar
    Share 29 Tweet 18
  • Lýst eftir Hlyni Gíslasyni

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    820 deilingar
    Share 328 Tweet 205
  • Leigja tonnið á 500.000 kr. og greiða 0 kr. í auðlindagjald og 0 kr. í vsk

    130 deilingar
    Share 52 Tweet 33
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?