Hugleiðingar veðurfræðings
Dýpkandi lægð suður af Hvarfi fer allhratt norðaustur í átt að landinu. Þá er vaxandi sunnanátt eftir hádegi, hlýnar og fer að rigna. Víða sunnan og suðvestan stormur, rok og sums staðar ofsaveður seint í dag og talsverð rigning, en úrkomuminna norðaustanlands.
Hægari um tíma í nótt, en gengur aftur í sunnan storm eða rok í fyrramálið og áfram talsverð rigning. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu, fyrst vestantil. Suðvestan allhvass vindur annað kvöld og kólnar með éljum.
Appelsínugular viðvaranir vegna vinds taka gildi síðdegis. Nauðsynlegt er að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Ekkert ferðaveður er á meðan viðvaranir eru í gildi. Spá gerð: 05.02.2025 06:43. Gildir til: 06.02.2025 00:00.
Appelsínugul viðvörun vegna veðurs á öllu landinu:
Veðurhorfur á landinu
Suðvestan 10-18 m/s og él, hvassast sunnan- og vestanlands. Vaxandi sunnanátt eftir hádegi með rigningu eða slyddu, sunnan og suðvestan 20-28 í kvöld, en hvassari á stöku stað og hviður yfir 40 m/s. Talsverð rigning, en úrkomuminna norðaustanlands. Hlýnar í veðri, hiti 2 til 8 stig í kvöld.
Hægari um tíma í nótt. Sunnan 23-30 í fyrramálið og talsverð rigning, en líklega hægari og snjókoma á Vestfjörðum. Dregur síðan úr vindi og úrkomu, fyrst vestantil. Hiti 1 til 14 stig, hlýjast í hnjúkaþey fyrir norðan. Suðvestan 13-20 annað kvöld og él. Kólnar í veðri.
Spá gerð: 05.02.2025 04:58. Gildir til: 06.02.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Sunnan 23-30 m/s um morguninn og talsverð rigning, en líklega hægari og snjókoma á Vestfjörðum. Hiti 1 til 14 stig, hlýjast í hnjúkaþey fyrir norðan, en svalast á Vestfjörðum. Dregur síðan úr vindi og úrkomu, fyrst vestantil, suðvestan 13-20 seinnipartinn og él. Kólnar í veðri.
Á föstudag:
Suðlæg átt, 5-13 og snjókoma eða él, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti í kringum frostmark, en hiti 0 til 5 stig við suðurströndina.
Á laugardag:
Suðvestan 3-10, en hvassari fyrripartinn norðvestantil. Víða dálítil snjókoma eða él af og til, en léttir til eystra síðdegis. Frost 0 til 8 stig.
Á sunnudag og mánudag:
Sunnan 10-18 og rigning með köflum, en yfirleitt hægari og þurrt á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir suðaustlæga átt og dálitla vætu sunnan- og vestanlands, en léttir til fyrir norðan. Milt veður.
Spá gerð: 04.02.2025 19:57. Gildir til: 11.02.2025 12:00.