• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Drög að frumvarpi dómsmálaráðherra um farþegaupplýsingar sett í Samráðsgátt

Drög að frumvarpi dómsmálaráðherra um farþegaupplýsingar sett í Samráðsgátt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
13. febrúar 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0
Drög að frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á lögum sem gera flugfélögum og öðrum farþegaflytjendum kleift að afhenda íslenskum yfirvöldum farþegaupplýsingar hefur verið lagt fram í Samráðsgátt. Um er ræða nauðsynlegt skref í því að styrkja og efla getu lögreglu til greininga slíkra upplýsinga sem er mikilvægur liður í því að koma í veg fyrir og rannsaka alvarleg afbrot, þar á meðal skipulagða brotastarfsemi og mansal.

Um er ræða mögulegar breytingar á lögum um landamæri nr. 136/2022, lögreglulögum nr. 90/1996 og tollalögum nr. 88/2005, að því varðar afhendingu og vinnslu upplýsinga um farþega og áhöfn. 

„Með þessu frumvarpi tökum við mikilvægt skref fyrir löggæsluna í landinu og um leið öryggis fólksins í landinu“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. „Við þurfum að hafa góða yfirsýn yfir hverjir eru að koma til landsins og dvelja hérna. Skipulögð brotastarfsemi hefur fest rætur á Íslandi. Þeim veruleika þarf að mæta af festu og skynsemi. Ég er viss um að breið sátt sé um þessar breytingar á Alþingi.“

Fyrirhugað er að gera samning við Evrópusambandið um afhendingu á svokölluðum PNR gögnum, þ.e. farþegabókunargögnum úr flugi til landsins. Markmið samningsins er annars vegar að gera flugfélögum og öðrum flytjendum sem skráðir eru í aðildarríkjum Evrópusambandsins kleift að afhenda íslenskum yfirvöldum farþegaupplýsingar með því að kveða á um tiltekin skilyrði fyrir vinnslu þeirra. Hins vegar er samningnum ætlað að tryggja samstarf íslenskra löggæsluyfirvalda við systurstofnanir innan aðildarríkjanna á sviði greininga á farþegaupplýsingum.

Frumvarp þetta er forsenda þess að unnt verði að fullgilda samninginn og þar með tryggja að íslensk yfirvöld fái afhentar upplýsingar um alla farþega sem koma til landsins.

Frestur til að senda umsögn við drögin er til 21. febrúar nk.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    74 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Eftirlýst kona handtekin

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?