Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru á þeirri skoðun að Ísland ætti ekki að skipta sér af Úkraínustríðinu að neinu leyti. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Á Ísland að fylgja sömu stefnu og ESB ríkin í Úkraínustríðinu?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Ísland ætti ekki að skipta sér af Úkraínustríðinu að neinu leyti: 55,6%
Nei Ísland ætti að móta eigin stefnu með hliðsjón af varnarsamningi við Bandaríkin: 36,7%
Já Ísland ætti að fylgja stefnu ESB ríkja: 7,2%
Hef ekki skoðun: 0,7%
Umræða