• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Leyfi til veiða á langreyðum gefið út

Skýrsla starfshóps um hvalveiðar í samráðsgátt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. maí 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Starfshópur um stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða hefur nú lokið vinnu sinni og skilað skýrslu til atvinnuvegaráðherra. Hún verður lögð inn á samráðsgátt stjórnvalda í dag þar sem almenningi gefst kostur í tvær vikur á að koma inn athugasemdum og ábendingum um efni skýrslunnar. Innsendar umsagnir og athugasemdir verða hafðar til hliðsjónar þegar ráðherra tekur tillögur starfshópsins til frekari skoðunar.

Ráðherra mun að loknu samráði taka ákvörðun um framtíð og lagaumgjörð hvalveiða á Íslandi.

„Markmið skýrslunnar er að vera grundvöllur að framtíðarstefnumótun á sviði hvalveiða, til að efla faglegan grundvöll ákvarðanatöku og stuðla að bættri stjórnsýslu til frambúðar, Ljóst er að hvaða leið sem farin er þarf að ráðast í breytingar á lögum og er stefnt að því að slíkt frumvarp yrði lagt fram á næsta löggjafarþingi,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Skipan starfshóps

Með bréfi dagsettu 13. febrúar 2024 skipaði þáverandi matvælaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, starfshóp til að rýna og skila skýrslu um stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða, þ.m.t. alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins og skyldur stjórnvalda á þeim grundvelli.

Starfshópinn skipuðu Þorgeir Örlygsson fyrrverandi hæstaréttardómari og var hann janframt formaður. Aðrir í starfshópnum voru Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor í umhverfis- og auðlindarétti við lagadeild Háskóla Íslands, Árni Kolbeinsson fyrrverandi hæstaréttardómari, Snjólaug Árnadóttir dósent og forstöðumaður Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík, og Trausti Fannar Valsson dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Árni Kolbeinsson lét af störfum í hópnum með bréfi dags. 5. október 2024 í kjölfar skipulagsbreytinga í ráðuneytinu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    410 deilingar
    Share 164 Tweet 103
  • Næsta lægð nálgast

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?