Veðurhorfur á landinu
Suðaustan 5-13 m/s suðvestantil, annars hægari vindur. Víða bjartviðri, en sums staðar þoka við ströndina á morgun. Hiti yfirleitt 10 til 18 stig, en að 23 stigum á norðaustanverðu landinu. Spá gerð: 14.05.2025 12:14. Gildir til: 16.05.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Suðaustan 5-13 m/s suðvestanlands, annars hægari vindur. Víða léttskýjað, en sums staðar þokuloft við ströndina. Hiti 12 til 22 stig yfir daginn, hlýjast fyrir norðan, en svalara í þokunni.
Á mánudag og þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt og bjartviðri, en líkur á þoku úti við sjóinn. Áfram hlýtt í veðri, einkum inn til landsins.
Á miðvikudag:
Sunnanátt og bjart veður, en þykknar upp og fer að rigna vestanlands.
Spá gerð: 14.05.2025 08:29. Gildir til: 21.05.2025 12:00.