Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að íslenskukunnátta ætti að vera skilyrði fyrir starfi á hjúkrunar og elliheimilum.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á íslenskukunnátta að vera skilyrði fyrir starfi á hjúkrunar og elliheimilum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
-
Já: 89,7%
-
Nei: 7,5%
-
Hlutlausir: 2,7%
Umræða