Kona um þrítugt var þann 12 apríl í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðuð í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 16. apríl á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mannsláti í umdæminu.
Það var snemma á föstudagsmorgun sem lögreglu barst tilkynning um meðvitundarlausan karlmann í heimahúsi í Garðabæ, var um föður konunar að ræða. Viðbragðsaðilar héldu strax á staðinn, en faðirinn var þungt haldinn þegar að var komið. Hann var fluttur á slysadeild og lést þar síðar um daginn. Konan, sem er í gæsluvarðhaldi, var handtekin í fyrrnefndu húsi.
Gæsluvarðhaldið yfir konunni hefur í þriðja sinn verið framlengt og er nú í fjórar vikur, eða til 1. júlí, á grundvelli almannahagsmuna.
Umræða