Hér er það helsta úr dagbók lögreglu klukkan 05:00 – 17:00. Þegar þetta er ritað gista þrír í fangaklefa. Alls eru 92 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu. Ásamt neðangreindu sinnti lögregla almennu eftirliti og ýmsum aðstoðarbeiðnum. Listinn er því ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1
- -Ökumaður stöðvaður eftir að hafa verið mældur á 125km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80km/klst.
- Ökumaðurinn reyndist einnig vera ölvaður og var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð í hefðbundið ferli.
- -Tilkynnt um þjófnað í verslun í hverfi 105. Lögregla sinnti og var málið afgreitt á vettvangi.
- -Tilkynnt um yfirstaðið innbrot í stofnun í hverfi 101. Gerandi hafði brotið upp hurð og unnið eignaspjöll innandyra. Málið í rannsókn.
- -Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 108. Búið var að stela talsverðu magni af vörum. Lögregla sinnti en gerandi fannst ekki þrátt fyrir nokkra leit.
Lögreglustöð 2
- Skráningarmerki tekin af einu ökutæki.
Lögreglustöð 3
- -Tilkynnt um umferðarslys þar sem ekið var á gangandi vegfaranda. Ökumaður bifreiðarinnar hafði hinsvegar ekki stöðvað og ekki er vitað hver ökumaður var.
- Einn var fluttur á slysadeild með áverka en ekki er vitað um líðan hans að svo stöddu.
- -Tilkynnt um mann í annarlegu ástandi í hverfi 201. Maðurinn búinn að neyta talsvert mikils magns áfengis og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
- -Tilkynnt um þjófnað í verslun í hverfi 201. Lögregla sinnti og málið afgreitt á vettvangi.
Lögreglustöð 4
- -Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Fluttur á lögreglustöð í hefðbundið ferli.
Umræða