Um kl. 10 í gærmorgun, 18. júní, var farið í samræmdar lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum á landinu þar sem framkvæmdar voru húsleitir að undangengnum úrskurðum frá Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Sérsveit Ríkislögreglustjóra gerði húsleit á Raufarhöfn en aðgerðin vakti athygli bæjarbúa er lögreglubílar umkringdu hús og sérsveitarmenn brutu sér leið inn. Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur um nokkurt skeið unnið að rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu.
,,Nútíminn hefur fyrir því heimildir að aðilar sem voru í húsinu sem ráðist var inn í á Raufarhöfn séu Albanir sem nýlegu fluttu til bæjarins en lögreglan hefur ekki viljað staðfesta þær upplýsingar að svo stöddu.“ Segir á vef fréttamiðilsins.
Með aðgerðunum í gær var unnt að staðfesta þessar grunsemdir og er rannsókn á frumstigi. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir sakborningum í dag.
Í aðgerðunum var lögreglan á Norðurlandi eystra í samstarfi við lögregluna á Vesturlandi, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra.
Málið er enn á viðkvæmu stigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.