Er Trump að svíkja loforð sín um “No More Endless Wars“. Bandaríska þjóðin kaus Trump með afgerandi meirihluta; landslide á forsendum friðar. Hann réðst á Íran í nótt. Hver stjórnar USA? Er Trump bara í klúbbi með Clinton, Bush, Obama og Biden?
Stjórnar ameríska hermaskínan forsetaembætti Bandaríkjanna? Sprengdi Trump frið í tætlur? Bandaríkin eru gjaldþrota heimsveldi með 37Trilljarða dollara ósjálfbæran skuldahala. Evrópa er valdalaus hækja liðinnar tíðar með eitraðan kokteil Nato/ESB að baki luktum dyrum í Brussel. Eina von mannkyns er að “…hvítir hattar“ séu raunverulegir.
ÍRAN Á ENGA VINI !!!
Fólkið í landinu veit ekki hvað er að gerast því lygaveita ríkisins lýgur öllu og heldur þjóðinni í myrkri. Það var broslegt að sjá gamlan vin Albert Jónsson í viðtali segja að Íran eigi enga vini. Albert er fyrrum sendiherra og ráðgjafi Miðflokksins!!! “…Íran á enga vini,“ sagði ráðgjafinn. Þetta er ofan á bullið um Úkraínu!!! Ótrúlegt rugl.
Allt sem okkur er sagt er hringavitleysa. Utanríkisráðherra Íran er í þessum töluðu orðum á leið til Moskvu til fundar við Vladimir Pútin. Erum við í þriðju heimstyrjöld; World War III líkt og “svikalogninu“ við upphaf World War II eftir að Þjóðverjar réðust inn í Pólland 1. september1939.
EINANGRUN VESTURLANDA
Á þessari öld hafa Vesturlönd einangrast stöðugt meira og fjarað undan evrópskum nýlenduþjóðum. BRICS hófu vegferð sína árið 2006 með Brasilíu, Rússland, Indland, Kína og S-Afríku. Árið 2024 gengu til liðs Egyptaland, Eþíópía, Íran, S-Arabía og Sameinuðu furstadæmin.
Árið 2025 eru að ganga til liðs Indónesía, Hvíta-Rússland, Bólivía, Kazakstan, Kúba, Malasía, Nígería, Thailand, Úganda, Uzbekistan og Natoþjóðin Tyrkland. Þarna eru yfir 80% mannkyns. Við erum vitni að hruni dollars. Poxy-stríð Evrópu gegn Rússlandi 2014-2025 rímar við Lebensraum Hitlers; innrásina í Sovétríkin 1941 til þess að komast yfir náttúruauðlindir Rússlands.
G7 SAMTÖK BEINAGRINDA
Um daginn yfirgaf Donald Trump G7 samkomu beinagrinda í Kanada. Hann skildi eftir áhrifalaus nýlenduveldi frakka þýskra & breta. Það er búið að sparka hrægömmum frakka út úr Afríku og íslensk þjóð veit það ekki. Á leið til Kanada lenti trúðurinn Macron á Grænlandi og hitti Mette sem heldur fram: „Stríð er betra en friður“ og „…Grænland er Evrópa.“
Evrópa er að reyna að halda síðustu nýlendu sinni Grænlandi og ná Íslandi aftur að hætti Dana sem rændu Ísland og fluttu þjóðarauð úr landi.