Mál er varðar skipulagða brotastarfsemi
Undanfarið hefur lögreglan á Norðurlandi eystra, í samvinnu við þrjú önnur lögregluembætti, unnið að rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem snýr að framleiðslu fíkniefna á nokkrum stöðum á landinu.
Eins og áður hefur komið fram var farið í samræmdar lögregluaðgerðir þann 18. júní síðastliðinn og eftir það voru fimm aðilar úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Norðurlands eystra sem síðar var staðfest í Landsrétti.
Samkvæmt kröfu lögreglunnar á Norðurlandi eystra hefur Héraðsdómur Norðurlands eystra framlengt gæsluvarðhald yfir sömu aðilum til 4. júlí næstkomandi. Fjórir af þessum fimm aðilum hafa kært þessa úrskurði til Landsréttar.
Unnið er að rannsókn málsins.